„Mér fannst æðislegt að fá að dekka þessar landsliðshetjur. Það er líka gefandi að vera partur af liðsheild, eitthvað sem er rosalega verðmætt í sjálfu sér,“ bætir hann við. Lokatölurnar voru 103 – 78 fyrir KR, en Högni náði samt þeim áfanga að skora þriggjastiga körfu á þeim rúmu sex mínútum sem hann spilaði. „Þetta andartak, þegar þristurinn fór ofan í, var algjört konfekt. Maður fór allur á svif. Ég hugsaði: „Vá, fyrstu stigin mín í endurkomunni eru þriggjastiga karfa gegn KR.“ Þetta var alveg ótrúlega gaman,“ útskýrir hann.

Hann hyggur á frekari afrek á körfuboltavellinum. „Já, planið er að halda áfram. Ég er staðráðinn í að standa mig vel. Nú er bara að æfa aukalega, fara í þrekæfingar og komast í betra form. Þá get ég farið að keppa almennilega við þessa spræku stráka sem eru í Valsliðinu.“
Högni hélt tónleika síðustu helgi, í Bæjarbíói í Hafnarfirði við góðan orðstír. Eins og hann sagði í samtali við Fréttablaðið um helgina, vinnur hann nú að sólóplötu og mun halda fleiri tónleika einn síns liðs, sem hann hefur ekki gert áður.
Sjá einnig: Högni kemur fram einn í fyrsta skipti
„Tónleikarnir í Hafnarfirðinum gengu vel. Maður er svolítið berskjaldaður svona einn og svolítið tirandi kannski. Ég held að ég hafi náð að anda rólega og koma öllu mínu til skila,“ segir hann hógvær. Næstu tónleikar Högna verða í Petersen svítunni, fyrir ofan Gamla bíó, þann 17. október.
Hér má sjá frekari upplýsingar um þá tónleika.
Þegar Högni er spurður hvort hann finni líkindi milli þess að leika á tónleikum og stíga inn á parketið í körfuboltaleik hugsar hann sig aðeins um. „Það eru alltaf líkindi milli þess þegar maður er settur í brennidepilinn og mikið liggur undir. Maður vill sýna sig og sanna, bæði fyrir sjálfum sér og öðrum. Það er auðvitað ákveðið stress sem fylgir í báðu. Þetta er „performance“, þetta snýst um að koma fram. Þetta er að mörgu leyti svipað og ég nýt þess að gera bæði.“
Hér að neðan má sjá þristinn hans Högna: