Handbolti

Fimm marka sigur Flensburg á meisturunum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Anders Eggert fagnar marki með Flensburg.
Anders Eggert fagnar marki með Flensburg. vísir/getty
Flensburg vann fimm marka sigur, 30-25, á Kiel í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en Flensburg hefur unnið þrjá fyrstu leiki sína.

Kiel byrjaði betur og komst í 3-1, en eftir það fóru heimamenn í Flensburg í gang og eftir stundarfjórðung var staðan 7-6 Flensburg í vil.

Í hálfleik leiddu svo heimamenn með þremur mörkum, 15-12, og þeir héldu uppteknum hætti í síðari hálfleik. Kiel náði aldrei að ógna Flensburg og heimamenn unnu að lokum sinn þriðja sigur í jafn mörgum leikjum. Lokatölur 30-25.

Anders Eggert var markahæstur hjá Flensburg með níu mörk, en næstur komu þeir Thomas Mogensen og Anders Zachariassen með fjögur hvor. Flensburg á toppnum með sex stig.

Domagoj Duvnjak skoraði fimm mörk fyrir Flensburg, en þeir Joan Canellas og Niclas Ekberg komu næstir með fjögur hvor. Meistararnir í Kiel að tapa því sínum fyrsta leik á þessari leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×