Handbolti

Aron og félagar komnir í úrslitaleikinn á HM félagsliða

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aron er á sínu fyrsta tímabili með Veszprém.
Aron er á sínu fyrsta tímabili með Veszprém. vísir/ernir
Það verður Veszprém sem mætir Füchse Berlin í úrslitaleik HM félagsliða á fimmtudaginn en ungverska stórliðið vann Sydney University frá Ástralíu, 29-17, í seinni undanúrslitaleiknum nú rétt í þessu.

Sjá einnig: Bjarki hetja Füchse Berlin gegn Evrópumeisturunum

Það var lítið skorað í fyrri hálfleik, eða einungis 14 mörk, en staðan að honum loknum var 9-5, Veszprém í vil. Ungverjarnir gáfu svo í í seinni hálfleiknum sem þeir unnu 20-12.

Momir Ilic var markahæstur í liði Vezprém með átta mörk en Gasper Marguc kom næstur með sjö mörk.

Aron Pálmarsson var ekki á meðal markaskorara en hann gekk sem kunnugt er í raðir Veszprém frá Þýskalandsmeisturum Kiel í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×