Ólafur: Alltaf gott að hafa stóran og breiðan hóp Ingvi Þór Sæmundsson á Samsung-vellinum skrifar 10. júlí 2015 22:51 Ólafur Jóhannesson og lærisveinar hans eru taplausir síðan 20. maí. vísir/stefán
Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var kátur með sigurinn á Stjörnunni á Samsung-vellinum í kvöld. Hann var þó varkár í svörum aðspurður hvort Valsmenn væru búnir að stimpla sig inn í toppbaráttuna. "Ég veit það nú ekki, mótið er rétt hálfnað. En við erum á góðum stað og í fínni stöðu," sagði Ólafur en Valur hefur ekki tapað leik síðan 20. maí. "Eins og ég hef margoft sagt erum við búnir spila vel lungann af mótinu," bætti Ólafur við. Valsmenn byrjuðu leikinn í kvöld illa og lentu undir á 21. mínútu. En þeir komu sér inn í leikinn og jöfnuðu metin sex mínútum síðar. Ólafur var ánægður með viðsnúninginn á leik sinna manna. "Mér fannst við byrja leikinn mjög illa. Við vorum langt frá mönnunum og þeir fengu mikið pláss. "Þeir settu mikla pressu á okkur fyrstu 25 mínúturnar en við lagfærðum það og mér fannst við ívið sterkari seinni partinn í fyrri hálfleik og allan seinni hálfleikinn," sagði Ólafur sem sagði aðstæður til knattspyrnuiðkunar hafa verið frábærar í kvöld. Félagaskiptaglugginn opnar í næstu viku, nánar tiltekið 15. júlí. Ólafur segir að Valur ætli að bæta þremur leikmönnum í hópinn. "Við erum skoða okkur um og það er mjög líklegt að við tökum þrjá nýja leikmenn. Það er alltaf gott að hafa stóran og breiðan hóp," sagði Ólafur en er hann með einhverjar sérstakar stöður í huga sem þarf að styrkja? "Ég er ekki búinn að ákveða það, ég er líka að skoða það," sagði Ólafur kankvís að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld Sjá meira