Guðjón Valur í liði ársins á Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2015 20:07 Guðjón Valur Sigurðsson. Vísir/EPA
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska handboltalandsliðsins og vinstri hornamaður spænska stórliðsins Barcelona, hefur bætt enn einni skrautfjöðrinni á frábæran feril sinn. Guðjón Valur, sem var að klára sitt fyrsta tímabil með Barcelona, var valinn í lið ársins í spænsku ASOBAL-deildinni. Guðjón Valur fékk 22 prósent atkvæða í stöðu vinstri hornamanns í úrvalsliðinu en í öðru sæti var José Mario Carrillo Gutiérrez hjá Ademar León með 19,8 prósent. Þriðji var síðan Juan García Lorenzana hjá Naturhouse La Rioja með 11,2 prósent. Reyndar á Barcelona alla sjö leikmennina í úrvalsliðinu en Barcelona vann alla 30 leiki sína í deildinni og það með 13,5 mörkum að meðaltali í leik. Barcelona fékk 12 stigum meira en næsta lið sem var Ciudad de Logrono og 17 stigum meira en BM Granollers sem endaði í þriðja sætinu. Guðjón Valur var markahæsti leikmaður Barcelona á tímabilinu með 135 mörk eða 4,8 mörk að meðaltali í leik. Kiril Lazarov kom næstur með 120 mörk og Siarhei Rutenka skoraði 107 mörk. Guðjón Valur nýtti 79 prósent skota sinna (135 af 170) en hann skoraði 23 mörk úr vítum og 48 mörk úr hraðaupphlaupum samkvæmt opinberri tölfræði spænsku deildarinnar.Lið ársins í spænsku ASOBAL-deildinniMarkmaður: Gonzalo Pérez de Vargas Moreno (FC. Barcelona)Vinstra horn: Guðjón Valur Sigurðsson (FC. Barcelona)Vinstri skytta: Nikola Karabatic (FC. Barcelona)Leikstjórnandi: Raúl Entrerríos Rodríguez (FC. Barcelona)Hægri skytta: Kiril Lazarov (FC. Barcelona)Hægra horn: Víctor Tomàs González (FC. Barcelona)Lína: Jesper Brian Noddesbo (FC. Barcelona)Þjálfari: Xavier Pascual Fuertes (FC. Barcelona)
Handbolti Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Í beinni: Fjölnir - Afturelding | Barist um farmiða í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Stig tekin af liði Ásdísar og félagið gæti hætt Fótbolti Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Viðar Ari fjórbrotinn Fótbolti Fleiri fréttir Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Gummersbach gaf mikið eftir í seinni hálfleik Sjá meira