Pálína Gunnlaugsdóttir skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Hauka. Þá hefur félagið einnig krækt í Jóhönnu Björk Sveinsdóttur frá Breiðabliki.
Um gríðarlegan liðsstyrk er að ræða fyrir Hauka sem endurheimtu Helenu Sverrisdóttur úr atvinnumennsku fyrr í sumar.
Þá var einnig samið við fjölda ungra leikmanna og sagði Kjartan Ásmundsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, að leikmannahópurinn væri tilbúinn fyrir næstu leiktíð. Enginn bandarískur leikmaður verður í herbúðum Hauka á næstu leiktíð.
Meira síðar.
Pálína og Jóhanna Björk semja við Hauka
Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
