Spjaldaglaðasti dómari færeysku deildarinnar dæmir leik Fjölnis og FH Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. júní 2015 18:15 Færeyski dómarinnr fær vonandi vinnufrið í Grafarvoginum. Vísir/Daníel
Færeyingurinn Eiler Rasmussen mun dæma leik Fjölnis og FH í Pepsi-deildinni sem fer fram á sunnudagskvöldið. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Eiler Rasmussen er 38 ára gamall síðan í maí og verður hann við störf hér á landi næstu daga og dæmir tvo leiki. Eiler dæmir fyrst leik KV og Njarðvíkur í 2. deild karla í kvöld, föstudaginn 26. júní og svo leik Fjölnis og FH í Pepsi-deild karla. Þessi dómaraskipti eru hluti af verkefni norrænu knattspyrnusambandanna varðandi samstarf í dómaramálum. Dagfinn Forná dæmdi leik Fylkis og Víkings í Pepsi-deildinni í fyrra (fór 1-1) og Ívar Orri Kristjánsson dæmdi leik B68 frá Tóftum og Víkings í færeysku deildinni. Eiler Rasmussen hefur dæmt þrettán leiki í færeysku deildinni á þessu tímabili og enginn dómari í deildinni hefur gefið fleiri spjöld. Rasmussen hefur lyft gula spjaldinu 63 sinnum og því rauða fimm sinnum. Hann dæmdi síðast leik B36 Þórshöfn og KÍ Klaksvík á sunnudagskvöldið var og þá fóru átta gul spjöld á loft hjá honum þar af fimm þeirra á heimamenn í B36 frá Þórshöfn. B36 Þórshöfn skoraði fyrra mark sitt í 2-1 sigri úr víti. Rasmussen hefur dæmt í færeysku deildinni síðan 2008 og á að baki 147 leiki í efstu deild.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rauðu djöflarnir verja ekki bikarinn Enski boltinn Tilkynnti að hún væri hætt í hjartnæmu viðtali Handbolti Píla festist í fæti keppanda Sport Sjáðu Benóný stimpla sig inn hjá stuðningsmönnum Stockport Enski boltinn Orri Steinn og félagar steinlágu í Katalóníu Fótbolti Orðinn þjálfari Galdurs eftir að hafa verið rekinn í beinni Fótbolti Munu taka hart á því hversu lengi markvörður heldur á boltanum Fótbolti Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Golf Kenndi hárvörum um í umdeildu jafntefli Sport Welbeck skaut Brighton áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Pedersen með tvö og Valsmenn í undanúrslit Auðun tekur við Þrótti Vogum „Fjölskyldan spurði hvort ég gæti ekki fundið hlýrra land“ Sveinn Margeir mögulega ekkert með Víkingum í sumar Víðir með Vestmannaeyingum í sumar Daði Berg frá Víkingi til Vestra Víkingar skipta um gír Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Atli Sigurjóns framlengir við KR Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ ÍA fær Baldvin frá Fjölni Útlit fyrir að Kjartan fylli skarð Gylfa hjá Val „Held að fólk sé komið með leið á því að lesa um þessi félagsskipti“ Gylfi orðinn Víkingur Valsmenn settu sex gegn Grindavík Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld Sjá meira