Handbolti

Tandra og félögum pakkað saman

Tandri í leik með HK.
Tandri í leik með HK.
Tandri Már Konráðsson og félagar í sænska liðinu Ricoh HK fengu á baukinn í kvöld.

Þá sóttu þeir lið Önnereds HK heim og steinlágu, 25-16.

Bæði lið eru í umspili um laust sæti í efstu deild að ári og hefði Ricoh getað komist á topp riðilsins með sigri.

Liðið er í öðru sæti en Önnereds er í því fjórða. Enn á eftir að spila nokkra leiki í þessu umspili og Ricoh á enn góðan möguleika á því að halda sæti sínu.

Tandri skoraði þrjú mörk í leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×