Handbolti

Leiðin grýtt hjá PSG í undanúrslit

Róbert í leik með PSG.
Róbert í leik með PSG. vísir/afp
Róbert Gunnarsson og félagar í PSG eru í erfiðum málum í Meistaradeildinni.

Liðið tapaði, 23-24, á heimavelli gegn Veszprém í dag í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum keppninnar.

PSG mátti þakka fyrir að tapa aðeins með einu marki því forskot ungverska liðsins var mun meira í síðari hálfleik.

Liðin mætast aftur að viku liðinni í Ungverjalandi og þá þurfa leikmenn PSG heldur betur að stíga upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×