Snorri Steinn frá í sex vikur vegna meiðsla Tómas Þór Þórðarson skrifar 11. febrúar 2015 10:00 Snorri Steinn spilaði brotinn og skoraði sex mörk í sjö skotum. vísir/eva björk
Snorri Steinn Guðjónsson, leikstjórnandi franska liðsins Sélestad og íslenska landsliðsins í handbolta, er meiddur á hendi og verður frá næstu sex vikurnar. Þetta hefur Vísir fengið staðfest. Snorri braut þumalfingur í bikarleik gegn Saran í síðustu viku sem Sélestad vann með eins marks mun, 27-26. Snorri skoraði sex mörk í sjö skotum í leiknum. Leikstjórnandinn þrautreyndi fann til eymsla í hendi við upphaf leiksins, en kláraði hann engu að síður brotinn á þumalfingri. Hann fór í skoðun hjá lækni franska landsliðsins í gær í Strasbourg þar sem kom í ljós að hann hefði brotnað á þumalfingri. Snorri var settur í spelku um leið. Þetta er mikið áfall fyrir Sélestad sem verður nú án síns lang besta leikmanns á tímabilinu í einn og hálfan mánuð. Liðið er í mikilli fallbaráttu með átta stig í 13. sæti af 14 liðum. Snorri Steinn er lang markahæstur í liðinu með 97 mörk í 14 leikjum eða tæp sjö mörk í leik. Sélestad varð fyrir öðru áfalli í sama leik því slóvenska skyttan Igor Vujic, einn besti leikmaður liðsins, meiddist á ný og verður frá í nokkrar vikur. Snorri Steinn ætti þó að vera orðinn heill fyrir næstu verkefni íslenska landsliðsins, en það mætir Serbum í tveimur leikjum 29. apríl og 3. maí í undankeppni EM 2016.
Handbolti Mest lesið Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn Uppgjörið: KA bikarmeistari í fyrsta sinn Íslenski boltinn Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-2 | Gylfi Þór jafnaði með stórkostlegu marki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Bjarki Már og Orri Freyr með stórsigra í Meistaradeildinni Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Haukur komið að nítján mörkum í fyrstu tveimur leikjunum í Meistaradeildinni Selfoss átti lítið í Íslandsmeistara Vals „Stefnum á að vera í þessum efri hluta“ Uppgjörið: ÍR - ÍBV 22-22 | Heimakonur komnar á blað Haukur magnaður í sigri á Viktor Gísla og félögum Alfa Brá og Katrín Anna í landsliðið Tímabilið byrjar vel hjá Bjarka sem varð markahæstur í stórsigri Sjá meira