Skoðun

Miðhálendi Íslands: Háspennulínur og hraðbrautir? Nei, takk!

Steingrímur J. Sigfússon skrifar
Tilkynningar tveggja aðila, Landsnets og Vegagerðarinnar, um að vinna sé að hefjast við umhverfismat á háspennulínu og uppbyggðum vegi um Sprengisand sæta tíðindum. Fyrir það fyrsta vaknar spurningin; er það svona sem framtíð miðhálendisins á að ráðast? Að einstakir framkvæmdaaðilar hefji undirbúning svo umdeildra framkvæmda án undangenginnar opinberrar umræðu og stefnumótunar sem tekur mið af viðhorfum dagsins og framtíðarinnar?

Er nóg að menn telji sig hafa glugga í gömlu miðhálendisskipulagi, sem einmitt nú sætir endurskoðun, sbr. vinnu við mótun Landsskipulagsstefnu 2015-2026? Og hvaðan kemur fé til þessara verkefna? Vegagerðin hefur ekki talið sig fara varhluta af samdrætti og niðurskurði og því miður með réttu. Stórir hlutar vegakerfisins eru að grotna niður. Hvernig er þá hægt að koma því við að setja mat á Sprengisandsleið í forgang?

Um hjartað þvert

Það er ekkert einkamál Landsnets og Vegagerðarinnar hvort farið verður með skóg háspennumastra og uppbyggðan veg þvert um hjarta miðhálendis Íslands. Ég kalla það að fara um hjarta miðhálendisins ef þræða á möstur og uppbyggðan veg milli friðlands í Þjórsárverum og Hofsjökuls á aðra hönd og Vatnajökulsþjóðgarðs að meðtöldum Vatnajökli og Tungnafellsjökli á hina. Og, síðan áfram norður um víðáttur Sprengisands allt norður í Bárðardal. Vissulega hefur Landsnet með í sínum drögum að matsáætlun þann möguleika að einhver hluti leiðarinnar á allra viðkvæmasta svæðinu fari í jörð og Vegagerðin gerir ekki ráð fyrir heilsársvegi. En hér þarf að mörgu að hyggja.

Verður ekki þrýstingurinn á að hafa jarðstrengsbútinn í 220 kv. línu sem allra stystan ef nokkurn og veginn það uppbyggðan og burðarmikinn að sumarið teygist í 6-9 mánuði ef ekki árið allt? Í upphafi skyldi endinn skoða ef yfir höfuð á að leggja af stað.

Bíðum við

Áhugi Landsnets á þessari framkvæmd kemur mér minna á óvart en þátttaka Vegagerðarinnar. Ég vissi ekki til þess að nýr vegur um Sprengisand væri þar framarlega í áætlunum og þaðan af síður að Vegagerðin væri svo vel sett með fjármuni að hún gæti kostað miklu til í slík áform nú. Og spyrja má; á að tengja nýjan Sprengisandsveg við Bárðardalsveg vestri í núverandi ástandi eða væri ráð að byggja hann upp fyrst? Og hvað með Kjalveg; væri frekar einhver friður um að lagfæra hann eitthvað á næstu árum en leyfa Sprengisandi að bíða? Þurfa ekki þing og þjóð að koma með einhverjum hætti beint og milliliðalaust að svo stóru máli sem framtíð miðhálendisins er áður en ákvarðanir eru teknar?

Er ekki mál að vakna, bræður og systur, áður en það verður of seint?




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×