Lífið

Verð alltaf stoltari og stoltari af mömmu

Álfrún Pálsdóttir skrifar
Ástríður Magnúsdóttir rifjar upp sögur tengdar fatnaði móður sinnar, frú Vigdísar Finnbogadóttur, er hún verður með leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin, frú forseti? á morgun.
Ástríður Magnúsdóttir rifjar upp sögur tengdar fatnaði móður sinnar, frú Vigdísar Finnbogadóttur, er hún verður með leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin, frú forseti? á morgun. Vísir/Gva
„Ég er stolt af því að hafa tekið þátt í undirbúningi sýningarinnar og það ferli var afar lærdómsríkt. Skemmtilegt var að vinna góðu teymi fólks og móður minni, taka við hana viðtöl sem tengdust fatnaði frá forsetatíð hennar og fram spruttu margar minningar, skemmtilegar sögur og fróðleikskorn,“ segir Ástríður Magnúsdóttir, dóttir frú Vigdísar Finnbogadóttur, sem verður með leiðsögn um sýninguna Ertu tilbúin, frú forseti? á morgun, á Alþjóðasafnadaginn, á Hönnunarsafni Íslands.

Fatnaður Vigdísar leikur lykilhlutverk í sýningunni en hann var mikilvægur í ímyndarsköpun forsetans. Það sem mótaði persónulegan stíl Vigdísar var Parísardvöl hennar, leikhúslífið og að lokum diplómatískar hefðir. Þegar hún tók við embætti forseta Íslands árið 1980 stóð Vigdís frammi fyrir því að skapa hefð um klæðaburð fyrir konu í slíku embætti.

Ástríður, sem er meistaranemi í listfræði og í sýningarnefnd sýningarinnar, var sjö ára þegar móðir hennar varð forseti og ætlar að rifja upp skemmtilegar sögur í leiðsögninni.

„Eins og til dæmis þegar hún þurfti að fara um borð í þyrlu á Grænlandi í skautbúningi og hversu mikinn tíma það gat oft tekið að hengja utan á fínu silkikjólana orður og aðra fylgihluti sem tilheyrðu embættinu. Sagan þegar skórnir gleymdust á 17. hæð á Imperial-hótelinu í Japan og hún var komin hálfa leið niður á töfflunum að hitta keisarann. Þá voru góð ráð dýr.“

Ástríður segist afar stolt af móður sinni og það aukist bara eftir því sem hún kafar dýpra í feril hennar, líf, boðskap og gjörðir. „Hún er brautryðjandi á mörgum sviðum, fyrsta konan til að vera kosin þjóðhöfðingi í lýðræðislegum kosningum og einnig fyrsta íslenska einhleypa konan til að fá leyfi til að ættleiða barn,“ segir Ástríður en sýningin sjálf stendur til 5. október. Leiðsögnin er á morgun, sunnudag, og hefst klukkan 14. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.