Brendan Rodgers: Real Madrid er líklega besta lið í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. nóvember 2014 12:00 Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool. Vísir/Getty
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Liverpool, reyndi að gera lítið úr vandræðum liðsins í varnarleiknum og viðurkenndi að Liverpool væri líklega að fara mæta besta lið heims á Santiago Bernabeu í kvöld. Liverpool er í 3. sæti í riðli sínum í Meistaradeildinni í fótbolta eftir 3-0 tap á móti umræddu liði Real Madrid í síðasta leik sem fór fram á Anfield. „Vörnin okkar er hvergi nærri eins slæm og fólk er að segja. Það sem hefur verið pirrandi en öll mistökin og ódýru mörkin sem við höfum fengið á okkur," sagði Brendan Rodgers en Liverpool-liðið hefur nú fengið á sig 21 mark í 15 leikjum og það gætu vissulega bæst við mörg á Bernabeu í kvöld. „Ég tel að við höfum sýnt það í fyrri leiknum, þrátt fyrir 3-0 tap, að við getum ógnað liði Real og við ætlum að reyna það líka í þessum leik. Við komum ekki hingað viðbúnir því að tapa leiknum og að treysta síðan á aðra leiki til að tryggja okkur áfram," sagði Brendan Rodgers „Þeir eru líklega með besta liðið í heimi í dag og við erum mjög spenntir fyrir að fá svona stóran leik. Við lítum á þennan leik sem gott tækifæri fyrir okkur og það er í okkar höndum að komast upp úr riðlinum," sagði Rodgers. Leikur Real Madrid og Liverpooll hefst klukkan 19.45 í kvöld og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu Spænski boltinn Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Í beinni: Chelsea - Barrow | Lítil hindrun fyrir Chelsea Í beinni: Man. City - Watford | City-menn standa í ströngu Fyrrum lögmaður Trump vill í enska boltann Tímabilið búið hjá Rodri? Bandaríkjamenn að eignast Everton Haaland ekki refsað BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Keane segir Arteta að taka lyfin sín Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Þrjú rauð á loft þegar Brighton og Forest gerðu jafntefli „Allir vilja að við verðum þurrkaðir af yfirborði jarðar“ „Átum þá lifandi í fyrri hálfleik“ „Ekki jafn auðvelt og lokatölurnar gáfu til kynna“ Gestirnir ívið betri en engin mörk skoruð Willum Þór gaf stoðsendingu Fulham fyrst til að vinna Newcastle og dramatík í Birmingham og Southampton Spurs vann þrátt fyrir að lenda undir eftir hálfa mínútu Díaz með tvö og Liverpool tyllti sér á toppinn Jackson í stuði þegar Chelsea fór létt með West Ham Endurkoma hjá Dagnýju Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Ferguson saknar fótboltans Alisson tæpur fyrir leikinn gegn Bournemouth Segir Arsenal sífellt betra en vill engar ásakanir um sálfræðistríð Alexander-Arnold reynir að kaupa Nantes Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Sjá meira