
Formaður Vina Ísraels kennir Hamas um átökin

Þetta segir Ólafur Jóhannsson, formaður félagsins Zion Vinir Ísraels og stjórnandi sjónvarpsþáttarins Ísrael í dag á Omega. Ólafur, sem býr í Ísrael sex mánuði ársins og hefur farið með Íslendinga í leiðsöguferðir þangað, var gestur í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hann segist vera í sambandi við palestínska vini sína á svæðinu sem margir hverjir standi með Ísrael í deilum þeirra við Palestínumenn.
„Það er af því að þeir vilja ljúka þessu af,“ segir Ólafur. „Undanfarin allavega tíu ár er búið að vera stöðugar sprengjuárásir frá Gaza-svæðinu yfir á Ísrael. Í byrjun, eins og við vitum, þá voru skot þeirra eða eldflaugar ekki mjög sterkar. En í dag eru þær mjög sterkar. Þær eru sjötíu til áttatíu kíló og drífa hundrað og fimmtíu kílómetra. Þær ná til Jerúsalem, til Tel Aviv og til Haifa.“
Ísrael beið of lengi með að svara
Ólafur segir að Íslendingar átti sig jafnframt ekki á stærð og umfangi gangakerfisins sem Ísraelsstjórn vill uppræta.
„Það eru bílar sem aka í gegnum þessi göng. Þegar það er talað um jarðgöng, þá held ég að margir hugsi að þau séu bara eins og rottugöng. En þetta er langt frá því.“
Hann segir að ekki sé hægt að ræða við Hamas-samtökin og segist líta svo á að upphaf átakanna sé þeim að kenna.
„Mér og mörgum öðrum finnst, og það má vera að einhver dæmi mig sem fanatískan út af þessu, mér finnst að ísraelska varnarliðið hafi ekki verið nógu duglegt að svara þessum árásum. Það var beðið í alltof langan tíma. Þangað til sá leiðinlegi atburður skeði að þremur ísraelskum drengjum, sextán til sautján ára, var rænt og þeir fundust myrtir, dánir eða hvernig sem við orðum það. Það gæti hafa verið svona sprengja í þessum málum.“
Hlusta má á viðtalið við Ólaf í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Tengdar fréttir

Mesta mannfall á Gaza frá því átökin hófust
87 Palestínumenn hafa fallið í hörðum átökum við Ísraelsher á svæði við landamærin að Ísrael. Þá féllu 13 ísraelskir hermenn í átökunum en þetta er mesta mannfall sem orðið hefur á einum sólarhring frá því átökin hófust fyrir tæpum tveimur vikum.

Segir Ísraela fremja þjóðarmorð á Gasa
Mustafa Barghouti, læknir sem hlotið hefur tilnefningu til friðarverðlauna Nóbels, segir ástandið á Gasa skelfilegt og kallar eftir efnahagsþvingunum gegn Ísrael.

John Kerry fordæmir árásir Hamas
Ísraelsher hóf aftur loftárásir á Gaza í dag eftir að stuttri tilraun til vopnahlés var mætt með flugskeytum af hálfu vopnaðs arms Hamas-samtakanna. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna fordæmir brot Hamas á umsömdu vopnahléi.

Sjúkrahúsið illa leikið eftir árásir Ísraelsmanna
Fjórir hið minnsta létust og fimmtán særðust eftir að Ísraelsher varpaði sprengjum á sjúkrahúsið. Myndbandið sýnir hvernig um var að litast í byggingunni.

Landhernaður Ísraela hafinn
Þúsundir Palestínumanna flýja nú norðurhluta Gaza-strandarinnar eftir að Ísraelsstjórn varaði við að herinn myndi ráðast gegn stöðum á svæðinu í tilraun til að stöðva eldflaugaárásir á landið.

Hrikalegt ástand á Gazaströndinni
Sextán Palestínumenn hið minnsta féllu í loftárásum Ísraelshers í nótt og hafa nú utanríkisráðherrar arabaríkja ákveðið að boða til fundar vegna deilunnar milli Ísraelsstjórnar og Hamas á Gazaströndinni.

Innrás Ísraelshers hafin á Gaza
sraelsmenn hafa hafið innrás á Gaza-ströndina og her þeirra fram af landi, sjó og úr lofti. Eitt helsta markmið innrásarinnar er að eyðileggja jarðgöng sem liðsmenn Hamas hafa notað til að komast inn í Ísrael.

Birta myndband af árás leyniskyttu á óbreyttan borgara
Samtök um alþjóðlega samstöðu, International Solidarity Movement, sendi í gær frá sér myndband, sem að sögn þeirra, sýnir ungan Palestínumann verða fyrir skotárás ísraelskrar leyniskyttu.