Hjúkrunarfræðingurinn neitar sök 24. júní 2014 10:53 Frá fyrirtökunni í morgun, Vísir/Pjetur
Hjúkrunarfræðingurinn, sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi vegna vanrækslu í starfi, og lögfræðingur Landspítalans, fyrir hönd spítalans, neituðu sök við fyrirtöku málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Málinu verður framhaldið þann 4. september næstkomandi. Hjúkrunarfræðingurinn hafnaði bótakröfu líkt og lögfræðingur spítalans. Við þingfestingu málsins í héraði 6. júní tók hjúkrunarfræðingurinn sér frest til að taka afstöðu til ákærunnar. Var því af þeim sökum frestað til dagsins í dag. Fyrsta mál sinnar tegundar Þetta er í fyrsta skipti sem Landspítalinn og starfsmaður hans eru ákærðir fyrir atvik af þessu tagi en atvikið átti sér stað í október árið 2012. Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. Hjúkrunarfræðingnum er meðal annars gefið að sök að hafa láðst að tæma loft úr kraga barkaraufarrennu þegar hún tók hinn látna úr öndunarvél. „Ákærðu var vel kunnugt um að henni bar að tæma loftið úr kraganum, líkt og vinnulýsing um notkun talventilsins kveður á um,“ kemur fram í ákærunni og urðu afleiðingarnar þær að fall varð á súrefnismettun og blóðþrýstingi sjúklingsins með þeim afleiðingum að hann lést skömmu síðar. Bótakrafa upp á tæpar fimmtán milljónir króna Þegar hjúkrunarfræðingurinn kom á umrædda kvöldvakt og tók við umönnun sjúklingsins er henni gefið að sök að hafa ekki framkvæmt öryggiseftirlit sem var hluti af starfsskyldum ákærðu samkvæmt verklagsreglum spítalans – „sem ákærða þekkti vel til,“ eins og stendur í ákærunni. Einnig er hún sökuð um að hafa brugðist tilkynningaskyldu með því hafa ekki látið þann hjúkrunarfræðing sem varð eftir á stofu sjúklingsins vita að hún hafi sett á hann talventil. „Þessi vanræksla ákærðu stuðlaði enn frekar að því að mannsbani hlaust af gáleysi hennar.“ Er hjúkrunarfræðingurinn krafin um á fimmtándu milljón króna frá aðstandendum hins látna, þar á meðal vegna kostnaðar við útför hans.
Hjúkrunarfræðingur sýknaður af ákæru um manndráp Dómsmál Landspítalinn Tengdar fréttir Segir ákæru gegn hjúkrunarfræðingi áfall Forstjóri Landspítalans segir að tilkynningar um mistök eigi ekki að leiða til leitar að sökudólgum. Heilbrigðisráðherra vonar að málið verði ekki til þess að heilbrigðisstarfsmenn hylmi yfir mistök. 23. maí 2014 20:00 Heilbrigðisstarfsfólk líklegra til að hylma yfir mistök sín „Ef við ætlum að læra af mistökum okkar þá verðum við að fá þau upp á yfirborðið,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 21. maí 2014 16:20 Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra „Ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“ 21. maí 2014 14:22 Ríkissaksóknari segir að greina þurfi refsisvert gáleysi frá óhappatilviljun Um manndráp af gáleysi er fjallað í hegningarlögum og samkvæmt þeim er um refsivert gáleysi að ræða þegar sá sem átti að gera sér grein fyrir tilteknum ástæðum og bregðast við í samræmi við það hafi hins vegar ekki gætt þeirrar varkárni sem af honum eða henni má ætla. 26. maí 2014 10:19 Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. 21. maí 2014 10:46 Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. 22. maí 2014 16:19 Hjúkrunarfræðingurinn tók sér frest Lögfræðingur hjúkrunarfræðingsins, sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi vegna vanrækslu í starfi, fór fram á frest til að taka afstöðu til ákærunnar þegar málið var þingfest í morgun. 6. júní 2014 09:59 Landlæknir setur spurningamerki við ákæru um manndráp Landlæknisembættið hefur skoðað kerfi Norðmanna þar sem mistök í heilbrigðisþjónustu er ekki tilkynnt til lögreglu nema grunur sé um glæpsamlegt athæfi. 23. maí 2014 07:00 Heilbrigðisstarfsmenn uggandi vegna ákæru um manndráp Fagfólk og aðstandandi sjúklings óttast breytt viðhorf og meiri þöggun um mistök vegna ákærunnar 22. maí 2014 07:00 Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Fleiri fréttir Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Sjá meira
Segir ákæru gegn hjúkrunarfræðingi áfall Forstjóri Landspítalans segir að tilkynningar um mistök eigi ekki að leiða til leitar að sökudólgum. Heilbrigðisráðherra vonar að málið verði ekki til þess að heilbrigðisstarfsmenn hylmi yfir mistök. 23. maí 2014 20:00
Heilbrigðisstarfsfólk líklegra til að hylma yfir mistök sín „Ef við ætlum að læra af mistökum okkar þá verðum við að fá þau upp á yfirborðið,“ segir Ólafur G. Skúlason, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. 21. maí 2014 16:20
Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra „Ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“ 21. maí 2014 14:22
Ríkissaksóknari segir að greina þurfi refsisvert gáleysi frá óhappatilviljun Um manndráp af gáleysi er fjallað í hegningarlögum og samkvæmt þeim er um refsivert gáleysi að ræða þegar sá sem átti að gera sér grein fyrir tilteknum ástæðum og bregðast við í samræmi við það hafi hins vegar ekki gætt þeirrar varkárni sem af honum eða henni má ætla. 26. maí 2014 10:19
Hjúkrunarfræðingur ákærður fyrir manndráp Hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. 21. maí 2014 10:46
Röð mistaka leiddi til andlátsins Mistök hjúkrunarfræðingsins áttu sér stað á kvöldvakt sem hún vann í beinu framhaldi af dagvakt. 22. maí 2014 16:19
Hjúkrunarfræðingurinn tók sér frest Lögfræðingur hjúkrunarfræðingsins, sem ákærður er fyrir manndráp af gáleysi vegna vanrækslu í starfi, fór fram á frest til að taka afstöðu til ákærunnar þegar málið var þingfest í morgun. 6. júní 2014 09:59
Landlæknir setur spurningamerki við ákæru um manndráp Landlæknisembættið hefur skoðað kerfi Norðmanna þar sem mistök í heilbrigðisþjónustu er ekki tilkynnt til lögreglu nema grunur sé um glæpsamlegt athæfi. 23. maí 2014 07:00
Heilbrigðisstarfsmenn uggandi vegna ákæru um manndráp Fagfólk og aðstandandi sjúklings óttast breytt viðhorf og meiri þöggun um mistök vegna ákærunnar 22. maí 2014 07:00