Skoðun

Niðurrif Fluggarða er hafið

Greta Björg Egilsdóttir skrifar
Í svari Umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkurborgar vegna athugasemda sem gerðar voru við nýtt deiliskipulag á Reykjavíkurflugvelli er stuðst að miklu leyti við skýrslu Björns Óla Haukssonar forstjóra Isavía sem ég hef áður ritað um. Skýrslan hefur verið harðlega gagnrýnd þar sem hún er unnin út frá algjörlega röngum forsendum sem stangast á við gildandi reglugerð um flugvelli.

Í skugga hótunar um stjórnsýslukæru sendi forstjóri Isavía leiðréttingarbréf til skipulagsfulltrúa þann 23. apríl síðastliðinn þar sem minniháttar rangfærslur eru leiðréttar en ekkert er minnst á að nothæfistuðull flugvallarins í þessari skýrslu er rangur. Skýrslan gefur því algjörlega ranga mynd af raunverulegu áhættustigi fyrir sjúkraflug verði neyðarbrautinni lokað. Af þessum sökum er Reykjavíkurborg enn að skipuleggja Vatnsmýrina miðað við rangar upplýsingar frá forstjóra Isavía og því ekkert lát á vinnu við að vængstífa flugvöllinn.

Í þessum skrifuðu orðum eru gröfur á vegum bílaleigunnar Hölds að spilla lóðinni þar sem að úthlutað hefur verið nærri 5000 fermetra sérafnotareit úr Fluggörðum án samráðs við hlutaðeigandi aðila að óskiptri sameign Fluggarða. En í skipulagsreglum fyrir svæðið segir „Óheimilt er stunda eða reka aðra starfsemi innan hvers reits en þá sem samræmist starfsemi í viðkomandi flokki sem skilgreindir eru í skilmálum þessum undir flokkunum „ Svæði án bygginga“ og „Svæði með byggingum/mannvirkjum”. Er flugvallarstjóra Reykjavíkurflugvallar, fyrir hönd rekstraraðila flugvallarins, heimilt að veita tímabundna undanþágu frá þessu, enda sé um að ræða starfsemi sem tengist flugrekstri eða rekstri flugvallarins, og sérstakar ástæður sem mæla með undanþágunni."

Seint verða þó bílaleigur taldar til flugtengdrar starfsemi þó svo að rekstur þeirra sé flugsækin starfsemi sem á heima utan flugvallarsvæðisins eins og gerist annarsstaðar í heiminum. Vinna er nú þegar hafin eins og áður sagði við að flytja girðingu Fluggarða og reisa nýja til þess að bílaleigan Höldur fái nær 5000 fm svæði undir bílastæði. Þetta er ólíðandi þar sem formaður Rögnunefndarinnar sem ætíð er vitnað til hefur óskað eftir svigrúmi til þess að klára sína vinnu áður en pólitísk afskipti séu höfð af svæðinu þar sem flugvöllurinn er nú.

Þetta verður að stöðva. Stöndum vörð um vilja kjósenda, kjósum Framsókn og flugvallarvini til að tryggja opna og faglega stjórnsýslu, xB.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×