NBA: Durant öflugur þegar OKC komst áfram - Indiana kláraði líka Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. maí 2014 07:30 Russell Westbrook í leiknum í nótt. Vísir/Getty
Oklahoma City Thunder og Indiana Pacers eru komin í úrslit í sínum deildum eftir sigra á útivelli í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. OKC vann sex stiga sigur á Los Angeles Clippers og Indiana vann 13 stiga sigur á Washington Wizards.Kevin Durant var með 39 stig og 16 fráköst þegar Oklahoma City Thunder komst í úrslit Vesturdeildarinnar eftir 104-98 sigur á Los Angeles Clippers í Staples Center. Russell Westbrook var með 19 stig og 12 stoðsendingar en OKC er komið í úrslit Vestursins í þriðja sinn á fjórum árum. Clippers-liðið komst reyndar sextán stigum yfir í leiknum í nótt en líkt og í leik fimm þá komu leikmenn Thunder sterkir til baka í lokin. Oklahoma City Thunder mætir San Antonio Spurs í úrslitum Vesturdeildarinnar. Chris Paul var með 25 stig og 11 stoðsendingar fyrir Los Angeles Clippers og Blake Griffin bætti við 22 stigum.David West skoraði 29 stig fyrir Indiana Pacers sem vann 93-80 sigur á Washington Wizards en með því tryggði Indiana-liðið sér 4-2 sigur í seríunni og sæti í úrslitum Austurdeildar á móti Miami Heat. Þetta er annað árið í röð sem liðin spila upp á sæti í lokaúrslitunum. Lance Stephenson var með 17 stig og 8 stoðsendingar fyrir Indiana sem tekur á móti Miami í leik eitt á sunnudaginn. Marcin Gortat var stigahæstur hjá Washington Wizards með 19 stig. Wizards-liðið var yfir í leiknum þegar átta og hálf mínúta var eftir en Indiana vann lokakaflann 20-6 og tryggði sér flottan sigur á útivelli.
NBA Mest lesið Breytti aðeins til og bætti heimsmetið í fimmtánda sinn Sport Ótrúleg sigurganga Klæbo endaði með árekstri og spítalaferð Sport Hættu við giftingu eftir sameiginlegt steggja- og gæsapartí Sport „Einn stærsti sigur hjá félaginu í körfubolta“ Sport Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Körfubolti „Þórsarinn er svo geggjaður“ Handbolti Glæsimark og ískaldur Albert tryggðu sigur Fótbolti „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Handbolti Sakar konung síðustu Vetrarólympíuleika um svindl Sport „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Körfubolti Fleiri fréttir KR - Keflavík 107-105 | Keflvíkingar gáfu frá sér fimmta sætið „Hefðum unnið þá í framlengingunni í staðinn“ Uppgjörið:Njarðvík - Valur 110-78| Njarðvíkingar að kveikja á sér á hárréttum tíma Uppgjör: Álftanes - ÍR 89-93 | Álftanes að missa af en ÍR á leið í úrslitakeppnina Hákon: Þetta er svo ógeðslega gaman Þór Þ. - Ármann 74-79 | Ármenningar skildu Þórsara eftir í fallsæti Risa leikur í kvöld: „Einn af þeim stærri í sögu Þórs Þorlákshafnar“ Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum „Þetta er ógeðslegt starf“ Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ Sjá meira