Lagið er falleg ballaða sem þykir eiga góða möguleika í aðalkeppninni að mati spekinga hjá síðunni Esctoday.com.
Myndbandið við lagið þykir velheppnað en það var frumsýnt á sögunum þar sem dansarar leika lykilhlutverki, eitthvað sem verður einnig er lagið verður flutt á sviðinu í Kaupmannahöfn í seinni undakeppninni þann 6.maí næstkomandi.
Sanna er 29 ára gömul og reynd söngkona í heimalandinu. Hún hefur sjö sinnum áður tekið þátt í Eurovision, eða Melodifestivalen eins og það heitir á sænsku. Þetta er þó í fyrsta sinn sem hún fer með sigur af hólmi.