Körfubolti

NBA í nótt: Wizards í úrslitakeppnina og enn einn sigur Spurs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
John Wall og Bradley Beal fagna í nótt.
John Wall og Bradley Beal fagna í nótt. Vísir/AP
Washington Wizards tryggði sér sæti í úrslitakeppninni í fyrsta sinn í sex ár með sigri á Boston í NBA-deildinni í nótt, er alls þrettán leikir fóru fram.

Washington vann Boston, 118-92, með 22 stigum frá Marcin Gortat. John Wall bætti við þrettán stigum og tíu stoðsendingum.

Þetta var 39. sigur liðsins á tímabilinu en Washington hafði síðustu fimm tímabil á undan aldrei komist yfir 30 sigra. Liðið er nú í sjötta sæti austurdeildarinnar.

Charlotte er svo í sjöunda sætinu en liðið vann Philadelphia í nótt, 123-93. Al Jefferson var með 25 stig og tíu fráköst og færðist liðið þar með nær sínu fyrsta sæti í úrslitakeppninni síðan 2010.

New York komst svo upp í áttunda sætið með sigri á grönnum sínum í Brooklyn, 110-81. JR Smith var með 24 stig, átta fráköst og sex stoðsendingar og Carmelo Anthony bætti við 23 stigum í öruggum sigri Knicks.

New York komst upp í áttunda sætið á kostnað Atlanta sem hefur gefið verulega eftir síðustu vikurnar og tapaði enn einum leiknum í nótt, í þetta sinn fyrir Chicago á heimavelli, 105-92.

Atlanta hefur nú tapað 21 af 28 síðustu leikjum sínum í deildinni og þarf verulegan viðsnúning á gengi liðsins ætli það sér að gera atlögu að áttunda sætinu sem er það síðasta sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Cleveland virðist ef til vill líklegra til að veita Knicks samkeppni um áttunda sætið en liðið vann Orlando í nótt, 119-98, og er í tíunda sætinu með 31 sigur - tveimur á eftir Knicks.

Dion Witers skoraði 26 stig fyrir Cleveland í leiknum og þeir Spencer Hawes og Tristan Thompson 20 hvor. Kyrie Irving skilaði sautján stigum í sínum fyrsta leik eftir meiðsli.

Topplið austurdeildarinnar - Miami, Indiana, Toronto og Chicago - unnu öll leiki sína í nótt og breyttist því staða liðanna ekkert.



Spennan um síðustu sætin í úrslitakeppninni vestanmegin er ekki síður spennandi en liðin í 7.-9. sæti eru öll hnífjöfn með 44 sigra og 31 tap.

Memphis og Phoenix fengu þó tækifæri til að komast upp fyrir Dallas í nótt en töpuðu bæði leikjum sínum.

Minnesota vann Memphis, 102-88, þar sem Kevin Love var með sína þriðju þreföldu tvennu á ferlinum - 24 stig, sextán fráköst og tíu stoðsendingar. Ricky Rubio var svo með fjórtán stig og sjö stosðsendingar.

LA Clippers vann Phoenix, 112-108. Darren Collison og Blake Griffin skoruðu 23 stig hvor fyrir Clippers en Phoenix lét leikinn renna sér úr höndum eftir að hafa verið með sautján stiga forystu í þriðja leikhluta.



San Antonio er svo á toppnum í vestrinu en liðið vann Golden State í nótt, 111-90. Tony Parker skoraði átján stig og Tim Duncan fimmtán en þetta var nítjándi sigur liðsins í röð sem er félagsmet. Sigur Spurs var öruggur og gat Gregg Popovich leyft sér að hvíla lykilmenn í leiknum.

Oklahoma City og Clippers koma svo næst á eftir í vestrinu og hafa tryggt sæti sitt í úrslitakeppninni. Houston, Portland og Golden State koma svo í næstu sætum á eftir.

Úrslit næturinnar:

Indiana - Detroit 101-94

New York - Brooklyn 110-81

Orlando - Cleveland 98-119

Philadelphia - Charlotte 93-123

Toronto - Houston 107-103

Washington - Boston 118-92

Atlanta - Chicago 92-105

Miami - Milwaukee 96-77

Minnesota - Memphis 102-88

San Antonio - Golden State 111-90

Denver - New Orleans 137-107

Phoenix - LA Clippers 108-112

Sacramento - LA Lakers 107-102

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×