Körfubolti

Hibbert settur á bekkinn eftir níu mínútur: "Ég hef ekkert að segja"

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Roy Hibbert skoraði ekki stig í gær.
Roy Hibbert skoraði ekki stig í gær. Vísir/EPA
Yfirlýst markmið Indiana Pacers fyrir tímabilið í NBA-deildinni í körfubolta var að vinna austrið til að vera með heimaleikjaréttinn í úrslitum austurdeildarinnar færi svo að liðið kæmist þangað.

Það var á góðri leið með að ná markmiðum sínum lengi vel á tímabilinu en Indiana er nú búið að tapa sjö af síðustu tíu leikjum sínum og er búið að missa efsta sætið til meistara Miami Heat eins og greint var frá í morgun.

Indiana-liðið hefur spilað hræðilega undanfarið og munar mikið um að stóri maðurinn undir körfunni, miðherjinn Roy Hibbert, hefur verið sérstaklega slakur og hreinlega ekki líkur sjálfum sér í síðustu leikjum.

Þessi 218cm hávaxni leikmaður hefur spilað 30,2 mínútur að meðaltali í leik á tímabilinu sem er það mesta á hans ferli. Mínútufjöldinn hefur haft áhrif á frammistöðu hans en Hibbert er að skora færri stig, taka færri fráköst og gefa færri stoðsendingar en áður.

Erfiðir dagar hjá Hibbert undanfarið.Vísir/EPA
Botninum var náð í tapi gegn arfaslöku liði Atlanta Hawks í nótt. Eftir níu mínútur án þess að skora stig, taka svo mikið sem eitt frákast eða gefa eina stoðsendingu fannst Frank Vogel, þjálfara Indiana, nóg komið og tók Hibbert af velli. Hann kom ekki meira við sögu.

„Ég íhugaði fyrir leikinn að hvíla Hibbert því hann virðist bara algjörlega úr sér genginn. Hann er 218cm hár og hefur spilað hvern einasta leik á tímabilinu. Það er sjaldgæft. Fyrir mér lítur hann út fyrir að vera alveg búinn á því. Hann leggur sig allan fram en hann er alveg búinn,“ sagði Frank Vogel eftir leikinn.

Sjálfur vildi Hibbert ekkert ræða málið við fréttamenn eftir leik. „Ég hef ekkert að segja,“ var það eina sem stóri maðurinn lét hafa eftir sér.

Samherjar Hibberts reyndu að koma honum til varnar og sögðu ástæðuna fyrir því að hann var settur á bekkinn vera að Hibbert gat illa varist Paul Millsap og PeroAntic, leikmönnum Atlanta.

„Þetta kom mér á óvart því þetta gerist aldrei,“ sagði Paul George, stórstjarna Indiana, eftir leikinn. „Hann passaði illa á móti Atlanta eins og það var að spila í leiknum. Það vildi bara skjóta fyrir utan þannig Roy, sem er frábær að verja körfuna, var að verjast of framarlega.“

Indiana er búið að vinna 53 leiki og tapa 25 á tímabilinu. Það er nú einum leik á eftir Miami í baráttunni um efsta sætið. Liðið á fjóra leiki eftir, þar af leik á móti Miami sem gæti verið úrslitaleikur um toppsætið.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×