Innlent

Fórnarlamb mannráns með sár eftir svipuhögg á bakinu

Stígur Helgason skrifar
Stefán Logi Sívarsson, skeljagrandabróðir.
Stefán Logi Sívarsson, skeljagrandabróðir.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar nú dæmds ofbeldismanns, Stefáns Loga Sívarssonar, sem er grunaður um að hafa svipt mann frelsi sínu í höfuðborginni fyrir nokkrum dögum, ekið með hann til Stokkseyrar, haldið honum þar föngnum í um sólarhring og beitt hann hrottalegu ofbeldi.

Lýsingarnar á ofbeldinu eru mjög grófar, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Meðal annars mun þolandinn vera með áverka eftir svipuhögg á bakinu. Rótin að árásinni er sögð vera persónulegar deilur Stefáns við þolandann.

Að minnsta kosti tveir menn voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins í fyrradag.

Annar þeirra er grunaður um að hafa tekið þátt í tveimur frelsissviptingum, þeirri á Stokkseyri og annarri á höfuðborgarsvæðinu, sem stóð skemur. Sá maður er 21 árs og er með fjölda dóma á bakinu, meðal annars fyrir ofbeldisfull rán.

Hinn er húsráðandinn á Stokkseyri, þar sem manninum var haldið föngnum. Sá leysti þolandann á endanum úr prísundinni og kom honum í strætisvagn.

Lögregla staðfestir að aðeins málið sé í rannsókn. Ekki fékkst staðfest hvort umfangsmikil leit lögreglunnar í Árnessýslu í gær tengdist mannránsmálinu. Hæstiréttur tekur ákvörðun um gæsluvarðhaldsvist mannanna í dag.

Hóf brotaferilinn ellefu ára

Stefán Logi Sívarsson á langan brotaferil að baki, sem hófst þegar hann var 11 ára gamall þegar hann réðst á móður á tombólu ásamt eldri bróður sínum.

Bræðurnir fengu síðar viðurnefnið Skeljagrandabræður í umfjöllun fjölmiðla um ofbeldisverk þeirra, eftir að þeir voru handteknir fyrir að misþyrma manni á heimili sínu að Skeljagranda. Fyrir það fékk Stefán tveggja ára fangelsi árið 2002. Hann fékk svo þriggja ára fangelsisdóm fyrir annað ofbeldisbrot fáum árum síðar.

Hann er með fleiri dóma á bakinu og komst síðast í fréttir þegar Hæstiréttur sýknaði hann af ákæru um nauðgun, sem héraðsdómur hafði áður dæmt hann í fimm ára fangelsi fyrir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×