Skoðun

Vinnuforkur sem lætur verkin tala

Ragnheiður Davíðsdóttir skrifar
Í Alþingiskosningunum ríður á að kjósendur velji fólk til starfa fyrir þjóðina sem treystandi er fyrir því að beita sér fyrir þjóðþrifamálum; fólk sem er fylgið sér og lætur verkin tala. Það er einnig afar mikilvægt að allir landshlutar hafi góðan málfylgjumann.

Einn þessara þingmanna sem valið stendur um er Ólína Þorvarðardóttir sem býður sig fram fyrir Norðvesturkjördæmi. Á þeim fjórum árum sem Ólína hefur setið á Alþingi hefur hún áorkað miklu fyrir landsbyggðina og almenning. Hún flutti fyrsta þingmálið um gerð Súðavíkurganga með þingsályktunartillögu í janúar og er það í fyrsta skipti sem það mál er tekið upp með formlegum hætti í þinginu. Þá beitti hún sér fyrir því að Dýrafjarðargöng kæmust aftur inn á framkvæmdatíma samgönguáætlunar en göngin höfðu fallið þaðan út. Það varð til þess að samþykkt var að göngin færu inn á endurskoðaða samgönguáætlun þar sem framkvæmdatími gangnanna var ákveðinn 2015-2018.

En Ólína hefur líka beitt sér mjög fyrir almannaréttindum. Eitt merkasta málið sem hún náði persónulega á kjörtímabilinu var breyting á lögum um upplýsingaskyldu stjórnvalda í umhverfismálum eftir díoxíðhneykslið sem kom upp í nokkrum sorpeyðingarstöðvum á landinu. Þá skrifaði hún ítarlega greinargerð um laga- og stjórnsýsluumhverfi í umhverfis- og mengunarmálum og flutti í framhaldinu – og fékk samþykkt í þinginu – sérstakt frumvarp sem herðir mjög á upplýsingaskyldu stjórnvalda við almenning í umhverfismálum.

Ólína hefur einnig látið sér annt um dýravelferð, enda sjálf mikill dýravinur sem sýnir sig í því að hún er virkur meðlimur í Björgunarhundasveit Landsbjargar og hestakona. Í stjórnarfrumvarpi, sem flutt var af atvinnuvegaráðherra, var gert ráð fyrir því að sett yrði inn sérstök lagaheimild til þess að gelda vikugamla grísi án deyfingar, og útivist látin nægja fyrir grasbíta á sumrin í stað beitar. Í atvinnuveganefnd beitti hún sér fyrir breytingu frumvarpsins, sem framsögumaður þess, og kom í veg fyrir að gelding ódeyfðra grísa yrði leidd í lög – sömuleiðis kom hún því inn að tryggja skuli grasbítum beit á grónu landi á sumrin.

Enn er þó ónefnt það málefni sem Ólína hefur beitt sér hvað mest fyrir á þingi en það er fiskveiðistjórnunarmálið. Hún hefur barist fyrir breytingum á því kerfi og beitt sér mjög fyrir því að þjóðin fái að njóta arðs af nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Veiðileyfagjaldið sem lögleitt var á síðasta ári felur í sér að þjóðin fái að njóta en ekki einungis fáir útvaldir. Fáir þingmenn, ef nokkrir, hafa jafn yfirgripsmikla þekkingu á þeim málaflokki og Ólína.

Það skiptir gríðarlegu máli hverjir veljast inn á Alþingi. Verkefnið fram undan er að skapa hér nýtt og betra samfélag þar sem jöfnuður og réttlæti eru leidd til öndvegis og íbúar landsins njóta arðs af auðlindum sínum. Ég hvet kjósendur Norðvesturkjördæmis til að kjósa þá fulltrúa inn á Alþingi sem hafa sýnt að þeir beri hag almennings fyrir brjósti. Þar tel ég Ólínu fremsta meðal jafningja.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×