
Píratar eru stjórnmálahreyfing internetsins
Tölvunördar eru hetjurnar í dag og nú eru þeir ásamt stórum hópi tæknisinnaðs fólks um allan heim að færa sig inn á svið stjórnmálanna til að tryggja réttindi sín á internetinu.
Stjórnmálaleg vakning
Peter Drucker, faðir nútímastjórnunar, skrifaði grein titlaða „Handan upplýsingabyltingarinnar“ rétt fyrir aldamótin síðustu. Þar benti hann á að upplýsingabyltingin hefði hegðað sér eins og iðnbyltingin og prentbyltingin þar á undan. Í hálfa öld var nýja tæknin nánast alfarið notuð til að gera hraðar og ódýrar sömu gömlu hlutina. Að því kom svo að tæknin var notuð til að gera eitthvað alveg nýtt sem gjörbylti sviði viðskipta, stjórnmála og samfélaginu í heild. Drucker sagði nánast öruggt að upplýsingabyltingin myndi hegða sér eins innan 20 ára, en enginn gæti enn árið 1999 spáð fyrir um hver nýjungin yrði.
Zbigniew Brzezinski, ráðgjafi Obama og gamall refur í alþjóðastjórnmálum, skrifaði svo níu árum á eftir Drucker grein í The New York Times sem hann titlaði: „Stjórnmálaleg vitundarvakning heimsins.“ Þar sagði hann að: „Í fyrsta skipti í sögunni er nærri allt mannkynið stjórnmálalega virkt, stjórnmálalega meðvitað og á stjórnmálaleg samskipti sín á milli.“ Þessi vakning hefur átt sér stað vegna Facebook, YouTube og annarra netsamfélaga sem komust fram hjá einokun margmiðlunarrisa og ríkisvalds á miðlun og túlkun upplýsinga. Rétt eins og prentvél Gutenbergs gerði fyrst Lúter og svo nýjum samfélögum, bæði trúar- og fræðimanna, fært að komast fram hjá einokun presta og prinsa á miðlun og túlkun upplýsinga. Stjórnmálaleg vakning prentbyltingarinnar færði í kjölfarið megnið af mannkyninu undan alræði presta og prinsa, og undir vald lýðræðislega kjörinna fulltrúa.
Sjálfsvörn netsamfélaganna
Tvíeyki margmiðlunarrisa og ríkisvalds reynir nú á öllum vígstöðvum að fá í gegn lög, eins og SOPA á síðasta ári, sem gefur þeim heimildir til að loka samfélögum internetsins. Píratar eru stjórnmálaarmur internetsins sem rís upp til að verja notendur þess og netsamfélög. Þeim finnst þeir vera að verja heimili sitt og fátt skapar meiri samstöðu og seiglu. Aðeins sjö árum frá stofnun fyrsta stjórnmálaflokks Pírata eru 600.000 skráðir Píratar með fleiri en 250 kjörna fulltrúa á löggjafarsamkundum um allan heim. Pírötum mun svo óhjákvæmilega halda áfram að fjölga ár frá ári þegar nýr árgangur ungs fólks sem býr á netinu nær kosningaaldri. Svo verði þeim að góðu sem vilja reyna að spyrna gegn stjórnmálalegri vakningu upplýsingabyltingarinnar.
Framtíðarsýn Pírata
Framtíðin er í höndum fólks sem skilur internetið, og framtíðin sem það mun skapa er falleg. Á netinu, sem mótar gildismat þeirra, eru samfélög samhjálpar og sjálfsákvörðunar, þar sem fólk hefur rétt til upplýsinga og ákvörðunar um málefni sem það varðar. Sívaxandi hluti þessa fólks er farinn að skipuleggja sig og hefur stofnað Pírataflokka í rúmlega sextíu löndum til að tryggja að stjórnkerfi og lög endurspegli þessi gildi netsamfélaganna. Hópur fólks sem vill slíkar lagabreytingar hérlendis tók nýlega upp merki Pírata og áherslur þeirra má sjá á piratar.is.
Skoðun

Hvað er markaðsverð á fiski?
Sverrir Haraldsson skrifar

Tími til kerfisbundinna breytinga í samfélagstúlkun – ákall til stjórnvalda
Anna Karen Svövudóttir skrifar

Fæðing Ísraels - Líkum misþyrmt
BIrgir Dýrfjörð skrifar

Við eigum allt. Af hverju finnst okkur samt vanta eitthvað?
Valentina Klaas skrifar

Um spretthóp og lestrarkennslu. Hvatning til mennta- og barnamálaráðherra um faglega starfshætti
Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar

Tíðaheilbrigði er lykilatriði í jafnrétti kynjanna
Berit Mueller skrifar

Þjóðarmorð – frá orðfræðilegu sjónarmiði
Eiríkur Rögnvaldsson skrifar

Borgarlína, barnleysi og bíllaus lífstíll – hentar það Kópavogi?
Einar Jóhannes Guðnason skrifar

Þakkir til starfsfólk Janusar
Sigrún Ósk Bergmann skrifar

Mun gervigreindin senda konur heim?
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Frá, frá, frá. Fúsa liggur á
Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Nokkur orð um stöðuna
Dögg Þrastardóttir skrifar

Kynbundinn munur í tekjum á efri árum
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

#blessmeta – þriðja grein
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar

Hvernig tryggir þú stærstu fjárfestingu lífins?
Berglind Halla Elíasdóttir skrifar

Ritunarramminn - verkfæri fyrir kennara!
Katrín Ósk Þráinsdóttir skrifar

Feluleikur Þorgerðar Katrínar
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ráðalaus ráðherra
Högni Elfar Gylfason skrifar

Spólum til baka
Snævar Ingi Sveinsson skrifar

Sögulegur dómur Hæstaréttar – staðfestir sjálfstæði Alþingis
Erna Bjarnadóttir skrifar

Að vera fatlaður á Íslandi er full vinna
Birna Ösp Traustadóttir skrifar

Sæluríkið Ísland
Einar Helgason skrifar

Áskorun til Alþingis: Tryggið almannahagsmuni - afnemið samkeppnisundanþágu afurðastöðvanna
Benedikt S. Benediktsson,Breki Karlsson,Halla Gunnarsdóttir,Ólafur Stephensen skrifar

Stormurinn gegn stóðhryssunni
Hallgerður Ljósynja Hauksdóttir skrifar

Kallið þið þetta fjölbreytni?
Hermann Borgar Jakobsson skrifar

Til varnar Eyjafjöllum - og Íslandi öllu
Pétur Jónasson skrifar

Réttlætið sem refsar Jóni
Hjálmar Vilhjálmsson skrifar

Guðmundur Hrafn Arngrímsson er maður sem hefur aldrei rúllað sexum
Kristján Blöndal skrifar

Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
Katrín Matthíasdóttir skrifar