Körfubolti

Körfuboltaveisla á Stöð 2 Sport á jóladag

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Lebron James treður hér yfir Ben McLemore, leikmann Sacramento Kings í leik liðanna.
Lebron James treður hér yfir Ben McLemore, leikmann Sacramento Kings í leik liðanna. Mynd/Gettyimages
Sannkölluð körfuboltaveisla verður á Stöð 2 Sport í kvöld. Að venju eru stórleikir í NBA-deildinni á jóladag en á milli leikja verður heimildarmyndin Ölli sýnd. Myndin fjallar um einn af efnilegustu körfuboltamönnum Íslands á sínum tíma.

Fyrsti leikur dagsins, Brooklyn Nets gegn Chicago Bulls hefst í beinni útsendingu klukkan 17. Báðum liðum var spáð góðu gengi á tímabilinu en eru hinsvegar að berjast um að komast í sæti í úrslitakeppninni. Þrátt fyrir að vera með dýrasta leikmannahóp deildarinnar gengur illa hjá Jason Kidd, þjálfara Nets að slípa saman leikmannahópinn.

Eftir leik Nets og Bulls verður heimildarmyndin Ölli eftir Garðar Örn Arnarson sýnd. Myndin fjallar um líf og leik Örlyg Arons Sturlusonar sem var eitt mesta efni í sögu íslensks körfubolta. Örlygur lék sinn fyrsta leik í meistaraflokki aðeins sextán ára, varð Íslandsmeistari með Njarðvík 18 ára og byrjaði að spila með landsliðinu ungur að árum en lést af slysförum árið 2000. Myndin rekur feril Örlygs og gefur áhorfendanum tækifæri að kynnast þessum einstaka dreng í gegnum þá sem stóðu honum næst.

Los Angeles Lakers tekur á móti Miami Heat í Staples Center í seinni leik kvöldsins á Stöð 2 Sport og hefst útsending klukkan 22. Lakers verða án Kobe Bryant, Steve Nash og Steve Blake en búist er við að Jordan Farmar taki þátt í leiknum eftir að hafa náð sér af meiðslum. Leikmenn Miami sem eru ríkjandi meistarar hafa aðeins tapað sex leikjum á tímabilinu sem er besti byrjun í sögu félagsins.

Þá tekur New York Knicks á móti Oklahoma City Thunder í Madison Square Garden, San Antonio Spurs tekur á móti Houston Rockets og að lokum mætast Los Angeles Clippers og Golden State Warriors í Oakland.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×