Brooklyn Nets braut ekki reglur þegar liðið samdi við Kirilenko Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. september 2013 23:45 Andrei Kirilenko. Mynd/NordicPhotos/Getty
Rússinn Andrei Kirilenko samdi í sumar við Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfubolta en hann spilaði síðast með liði Minnesota Timberwolves. Kirilenko átti kost á því að gera nýjan og miklu hagstæðari samning við Minnesota en valdi frekar að fara til Brooklyn Nets fyrir miklu minni pening. Andrei Kirilenko gerði eins árs samning við Brooklyn Nets sem mun gefa honum 3,1 milljón dollara (377 milljónir íslenskra króna) en Minnesota Timberwolves bauð honum um tíu milljónir dollara. Kirilenko fórnaði því um 850 milljónum íslenskra króna til að fá að spila fyrir Brooklyn Nets. Bandarískir fjölmiðlar gerðu strax mál úr þessu og margir fóru að velta því fyrir sér hvort Andrei Kirilenko væri hugsanlega að fá borgað undir borðið frá landa sínum og eiganda Brooklyn Nets, Mikhail Prokhorov. Forráðamenn NBA-deildarinnar könnuðu málið og hafa nú komist að því að Brooklyn Nets hafi ekki brotið neinar reglur. Andrei Kirilenko fær ekki bara peninga fyrir að spila með Brooklyn Nets því hann mun spila þar fyrir Jason Kidd og við hlið stjörnuleikmanna á borð við Kevin Garnett, Paul Pierce, Deron Williams og Joe Johnson. Hvort þeir eigi möguleika á því að veltqa NBA-meisturum NBA af stalli er önnur saga.
NBA Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Fótbolti Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Söguleg niðurlæging í Króatíu Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Fleiri fréttir Grindavík - KR | Ballið hefst á meistaraslag Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Sjá meira