Körfubolti

Lakers með nýjan "Hollywood" búning

Kobe Bryant tekur sig vel út í nýja búningnum.
Kobe Bryant tekur sig vel út í nýja búningnum. mynd/lakers.com
Los Angeles Lakers frumsýndi í nótt nýjan búning félagsins sem er einfaldlega kallaður "Hollywood Nights".

Þessi nýi, svarti búningur verður notaður í einstaka leikjum í vetur. Fyrir er Lakers með bláan og hvítan búning.

Á heimasíðu félagsins segir að stuðningsmenn hafi lengi beðið um að fá svartan búning og að félagið hafi unnið að því að hanna slíkan búning í mörg ár.

Með þessu Hollywood-þema er félagið meðal annars að heiðra stjörnur eins og Jack Nicholson sem hefur varla misst úr leik hjá liðinu í mörg ár.

Það var að sjálfsögðu aðalstjarna liðsins, Kobe Bryant, sem var notaður til þess að kynna nýja búninginn.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×