Körfubolti

Odom fundinn | Er á kafi í eiturlyfjanotkun

Lamar Odom.
Lamar Odom.
Körfuknattleiksmaðurinn Lamar Odom er kominn í leitirnar en í gær var greint frá því að hann væri búinn að vera týndur í 72 klukkutíma.

Umboðsmaður Odon staðfesti að Odom væri á hóteli í Los Angeles. Þar hafa vinir hans setið hjá honum og reynt að fá hann til þess að fara í meðferð. Odom er sagður vera í mikilli eiturlyfjanotkun.

Hjónaband hans og raunveruleikastjörnunnar Khloe Kardashian stendur á brauðfótum og ferill Odom hefur þess utan farið ofan í ræsið á mettíma.

Odom á þrettán ár að baki í NBA-deildinni þar sem hann hefur skorað 13,3 stig og tekið 8,4 fráköst að meðaltali í leik.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×