Spurs með sópinn á lofti 28. maí 2013 09:07 Tony Parker var frábær í nótt. vísir/getty
San Antonio Spurs komst í nótt í úrslit NBA-deildarinnar. Spurs gerði sér lítið fyrir og sópaði Memphis Grizzlies í sumarfrí í úrslitum Vesturdeildarinnar. Spurs vann leikinn í nótt 93-86 og rimmuna 4-0. Spurs mun mæta Miami Heat eða Indiana Pacers í úrslitunum. Tony Parker fór á kostum í liði Spurs í nótt og skoraði 37 stig ásamt því að gefa 6 stoðsendingar. Parker var með 24,5 stig og 9,5 stoðsendingar að meðaltali í einvíginu. Varnarleikur Spurs var frábær en liðið hélt Memphis í aðeins 37 prósent skotnýtingu. Þetta var þriðji leikurinn í röð þar sem Memphis er með minna en 40 prósent skotnýtingu. "Þetta er ótrúleg tilfinning. Það er gríðarlega erfitt að komast í úrslit og vinna titilinn. Ég var 21 árs er ég varð meistari í fyrsta skipti. Þá hélt maður að það væri ekkert mál og að við myndum koma í úrslitin á hverju ári," sagði Parker. "Árið 2007 þá vann ég minn þriðja titil á fimm árum. Svo líða sex ár og þetta verður alltaf erfiðara og erfiðara. Það vilja öll lið vinna okkur. Þess vegna er mjög sérstakt að vera kominn aftur í úrslit eftir öll þessi ár."
NBA Mest lesið „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Körfubolti Ronaldo gæti spilað með syni sínum Fótbolti Martröð Chelsea en Brighton gæti endað í Meistaradeild Evrópu Sport Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Körfubolti Glaður að hafa ekki hlýtt gervigreindinni Fótbolti Leicester féll aftur og Coventry landaði titlinum Enski boltinn Ótrúleg endurkoma og Inter gæti náð tvennunni Fótbolti Þriðji markvörðurinn stígur upp hjá Liverpool Enski boltinn Baulað á skúrk síðustu viku en Real heldur í vonina Fótbolti Ísland niður um sæti en berst við tvö af þremur bestu í heimi Fótbolti Fleiri fréttir „Bað hann um að segja mér ekki að fokka mér“ Tindastóll - Stjarnan 95-96 | Sóttu fyrsta sigurinn þrátt fyrir áföllin Fyrstur til að vera kosinn varnarmaður ársins með fullu húsi Pressan á Tindastól? „Einhver sálfræði 101 sem hann er að reyna rembast við“ Úlfarnir og Haukarnir með endurkomur Selfyssingar svöruðu fyrir sig Uppgjörið: Haukar - Keflavík 85-71 | Öruggt hjá Hafnfirðingum í fyrsta leik Martin næstum því með stig á mínútu í öruggum sigri Glímir við mikið áfall: „Ennþá smá dauður að innan“ Of mikil pása gæti verið slæm „Vildi að pabbi væri hérna“ Uppgjörið:Valur - Keflavík 90-74| Valsmenn sendu Keflavík í sumarfrí „Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“ Uppgjörið: Njarðvík-Grindavík 81-87 | Grindavíkurkonur byrja betur Keflavík hefur ekki unnið oddaleik í fimmtán ár Luke leiddi Lakers til sigurs í fjarveru Luka Hamar/Þór áfram í Bónusdeildinni eftir endurkomusigur Tryggvi góður en liðið tapaði leik sem þurfti að vinnast Kerr íhugar framtíð sína eftir tap í umspilinu Stighæsti leikmaður Ólympíuleikanna látinn Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Sindramenn og Blikar byrja vel Uppgjör: KR-Keflavik 83-91 | Keflavíkurkonur í undanúrslit Luka Doncic vann áfrýjunina og er gjaldgengur fyrir öll verðlaun NBA Oddaleikurinn færður vegna árshátíðar Curry hélt stríðsmönnunum á lífi Völdu kærustu hennar líka númer eitt Uppgjörið: Keflavík-Valur 88-81 | Keflavík tryggði sér oddaleik J. Cole slítur samningi sínum í Kína Olnbogi Ægis brotnaði Sjá meira