Þrír sigrar og eitt tap á eistneskum degi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2013 22:39 Dagur Kar Jónsson var með 37 stig á móti Eistum. Mynd/Anton
Íslensku unglingalandsliðin í körfubolta unnu þrjá af fjórum leikjum sínum á fyrsta degi Opna Norðurlandamóti unglinga í körfubolta sem fer fram í Stokkhólmi eins og undanfarin ár. Ísland mætti Eistlandi í leikjum sínum í dag. Bæði 16 ára og 18 ára strákarnir unnu sína leiki sem og 16 ára stelpurnar en 18 ára stelpurnar urðu að sætta sig við tap. Eftir að öll lið hafa leikið gegn hvort öðru verður farið í töfluna og það lið sem situr í efsta sæti verður krýnt Norðurlandameistari í sínum flokki. Undanfarin ár hefur verið leikið um 1. sætið og 3. sætið. Nú leika öll lið fimm leiki sem telja til sigurs.Átján ára lið karla vann 103-102 spennusigur á Eistlandi eftir tvíframlengdan leik. Stjörnumaðurinn Dagur Kar Jónsson (sonur Jóns Kr. Gíslasonar) skoraði 37 stig, Njarðvíkingurinn Maciej Baginski var með 24 stig og Grindvíkingurinn Jón Axel Guðmundsson (sonur Guðmundar Bragasonar) skoraði 22 stig. Pétur Birgisson frá Tindastóli skoraði sigurkörfuna sex sekúndum fyrir leikslok.Njarðvíkingurinn Kristinn Pálsson (sonur Páls Kristinssonar) skoraði 34 stig og Kári Jónsson (sonur Jóns Arnars Ingvarssonar) var með 19 stig þegar 16 ára lið Íslands vann öruggan 86-67 sigur á Eistlandi.Ísfirðingurinn Eva Kristjánsdóttir skoraði 19 stig fyrir 16 ára lið kvenna sem vann 58-48 sigur á Eistlandi. Haukakonan Þóra Kristín Jónsdóttir var með 16 stig og Grindvíkingurinn Ingibjörg Sigurðardóttir skoraði 13 stig.Lovísa Björt Henningsdóttir úr Haukum skoraði 15 stig og tók 11 fráköst og Keflvíkingurinn Ingunn Embla Kristínardóttir var með 10 stig, 10 fráköst og 4 stoðsendingar þegar 18 ára lið kvenna tapaði 53-68 fyrir Eistlandi. Á morgun verður „norskur dagur“, öll fjögur liðin okkar leika gegn Noregi og þannig verður framhaldið, allir leika gegn Finnum á föstudag, Svíum á laugardag og Dönum á sunnudaginn.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Tók tíuna af Messi og sló met Maradona Fótbolti Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Körfubolti Flugu inn á HM þrátt fyrir átta markalaus jafntefli Fótbolti Ofurtölvan telur Liverpool líklegast til að vinna Meistaradeildina Fótbolti Ómar Ingi fór áfram hamförum Handbolti Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Körfubolti „Þú veist að það er bara einn Siggi Hall“ Íslenski boltinn Álftanes mætir stórliði Benfica Körfubolti Engin vandamál hjá Arnari Birki og félögum Handbolti Einn þekktasti handknattleiksdómari heims látinn Sport Fleiri fréttir Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Kobe Bryant á ennþá langvinsælustu skóna í NBA Finnar með einn óvæntasta sigur í sögu EM Stórleikur Porzingis dugði Lettum skammt Unnu lokaleikhlutann með 26 stigum Sengün stórkostlegur þegar Tyrkir komust í átta liða úrslit Valsmenn búnir að finna Kana Gaf báðum stelpunum sem hann datt á áritaða treyju Caitlin Clark ekki meira með á tímabilinu Myndir frá endalokum Íslands á EM Luka skaut Ísrael í kaf EM í dag: Flenging og stór bossi í kveðjuþætti Skýrsla Henrys: Eins og lömb leidd til slátrunar „Heilinn var að öskra á mig og líkaminn svaraði ekki“ Hilmar Smári til Litáens Craig vill halda áfram: „Vona að þetta hafi ekki verið síðasti leikurinn“ Síðasti landsleikur Ægis?: „Það eru góðar líkur á því“ „Þetta er búið að vera eins og lífið er“ „Þegar maður klæðist þessari treyju er maður stór“ Sjá meira