NBA í nótt: Allen bætti met Miller Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. apríl 2013 09:00 Allen ræðir við NFL-stjörnuna Aaron Rodgers fyrir leikinn í nótt. Mynd/AP
Ray Allen tók fram úr Reggie Miller í nótt og er nú orðinn sá leikmaður sem hefur skorað flestar þriggja stiga körfur í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Allen skoraði 23 stig fyrir Miami þegar að liðið vann öruggan sigur á Milwaukee, 104-91. Þar af skoraði hann fimm þriggja stiga körfur í leiknum og eru þær orðnar alls 322 á ferlinum í úrslitakeppninni. Miami er komið með 3-0 forystu í einvíginu og getur tryggt sér sæti í næstu umferð með sigri í leik liðanna á sunnudag. LeBron James skoraði 22 stig fyrir Miami og þá var Chris Bosh með sextán stig og fjórtán fráköst. Chicago vann Brokklyn, 79-76, og náði þar með 2-1 forystu í einvíginu. Carlos Boozer var með 22 stig og sextán fráköst og Luol Deng bætti við 21 stigi auk þess að taka tíu fráköst. Skotnýting Brooklyn var aðeins 35 prósent, annan leikinn í röð. Brook Lopez var með 22 stig og níu fráköst. Deron Williams var með átján stig en hann nýtti fimm af fjórtán skotum sínum í leiknum. Memphis vann LA Clippers, 94-82, og minnkaði þar með muninn í 2-1 í einvíginu. Zach Randolph var með 27 stig og ellefu fráköst. Clippers hafði unnið níu leiki í röð fyrir leik næturinnar en Blake Griffin skoraði sextán stig fyrir liðið. Marc Gasol fékk verðlaun sín fyrir leik en hann var valinn varnarmaður ársins í NBA-deildinni á dögunum.
NBA Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Sögðu Betu að drulla sér frá Belgíu: „Nýtt fyrir mér“ Fótbolti Sláandi tölfræði Sveindísar: Eitt skot á markið á 419 mínútum á EM Fótbolti Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Körfubolti „Að hlusta á ræður hjá henni gefur mér enn gæsahúð“ Fótbolti Fleiri fréttir Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Haliburton sér ekki eftir neinu: „Ég myndi gera þetta aftur og aftur“ „Búið að vera ómannlegt álag á þeim síðustu tíu mánuðina“ Sjá meira