
Bældar minningar á brauðfótum?
Um þessa sjálfshjálparbók hafa fjölmargir fræðimenn fjallað og verður ekki betur séð en það sé samdóma álit þeirra, að þarna sé á ferðinni mjög varhugavert rit og þá einkum vegna þess með hvaða hætti fjallað er um bældar minningar.
Bókin hefur einnig sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa valdið ómældum skaða í lífi einstaklinga og fjölskyldna. Í Ástralíu hefur t.d. verið á það bent, að tengja megi bókina við nærri helming allra mála þar sem fram hafa komið rangar sakargiftir um kynferðisofbeldi gegn börnum. Þá hefur bandaríski geðlæknirinn og prófessorinn Paul R. McHugh við Johns Hopkins-háskólann í Bandaríkjunum lýst henni sem „biblíu vankunnandi þerapista.“ Í þessu sambandi má svo nefna, að þær Ellen Bass og Laura Davis, sem eru höfundar bókarinnar, eru hvorugar menntaðar á sviði sálfræði eða lækninga og hefur þeim satt að segja gengið brösuglega að verja framsetningu sína og forsendur.
Það hlýtur að vekja spurningar með öllum þeim sem lesa um minningar Guðrúnar Ebbu hvernig hægt sé að gleyma áratugslangri kynferðismisnotkun og ofbeldi jafn rækilega og hún segist hafa gert. Er í rauninni óskiljanlegt að hún hafi komist hjá að minnast slíkrar reynslu allt til ársins 2003, en þá hafði meint kynferðisáreiti föður hennar gagnvart öðrum konum þegar verið í sviðsljósi fjölmiðla frá árinu 1996.
Að auki má svo spyrja hvort minningar um misnotkun á æsku- og unglingsárum hefðu ekki átt að brjóta sér leið fram í vitundina árið 1999 þegar faðir hennar á að hafa misnotað hana 43 ára gamla úti í Winnipeg.
Þessum athugasemdum kynnu einhverjir að svara sem svo, að svona séu þessi mál og varnarhættir manneskjunnar stundum með þeim hætti að best sé að bæla allar minningar til að komast af. En hvað segja fræðimenn um bældar minningar?
Eins og við má búast eru skoðanir skiptar í þeim hópi. Þó virðast þær raddir orðnar áberandi í fræðaumræðunni, að fátt sé til sem verðskuldi heitið bældar minningar og vandamálið hið gagnstæða: fólk muni of vel eftir áföllum og upplifi aftur og aftur þá skelfilegu atburði, sem þeim búa að baki. Er það t.d. mat prófessorsins Richards McNally við Harvard að kenningin um bældar minningar sé einhver sú skaðlegasta sem fram hafi komið innan sálarfræði og geðlækninga.
Hann fer ekki heldur dult með þá skoðun sína að fákunnandi fagfólk geti auðveldlega komið inn fölskum minningum hjá skjólstæðingum sínum.
Í sama streng tekur Richard Ofshe, prófessor í Berkeley, en hann hefur talað um gervivísindi og skottulækningar þegar bældar minningar koma við sögu. Einnig hefur bandaríski blaðamaðurinn og rithöfundurinn Mark Pendergrast, sem skrifað hefur ítarlega um efnið, bent á að þrátt fyrir rækilega athugun hafi sér ekki tekist að finna nein sannfærandi tilfelli sem styðji það viðhorf að hægt sé að verða fyrir áralangri alvarlegri kynferðismisnotkun og láta minningar þar um falla í gleymskunnar dá. Það hefur komið fram í viðtali við dr. Berglindi Guðmundsdóttur sálfræðing að hún þekki til vinnubragða sálfræðings Guðrúnar Ebbu og gefur hún þeim þá einkunn, að „þau séu bæði fagleg og í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í svona málum“.
Við lestur bókarinnar Ekki líta undan er hins vegar auðvelt að draga þá ályktun að hugmyndir um bældar minningar hafi þar verið lagðar til grundvallar. Virðist Guðrún Ebba t.d. ekki hafa verið lengi í viðtölum þegar sálfræðingurinn segir að sér finnist hún „bera svo augljós merki þess, að hafa orðið fyrir alvarlegu áfalli“. Því neitar Guðrún Ebba alfarið, en með áframhaldandi meðferð fara „minningarnar” að streyma fram. Sálfræðingnum er verulega brugðið en lætur það samt ekki slá sig út af laginu, því hann „vissi hvað þarna var á ferðinni“. (bls. 153-154)
Eftir að hafa sem leikmaður kynnt mér umræðuna um bældar og falskar minningar, sem og reynslusögur margra sem telja sig hafa orðið fórnarlamb þessarar umdeildu hugmyndafræði, er erfitt að verjast þeirri hugsun að Guðrún Ebba sé eitt fórnarlambið í viðbót.
JPV-útgáfan sér ástæðu til að birta ítarefni um kynferðisofbeldi í lok bókarinnar – og er það vel. Með réttu hefði þó einnig mátt fjalla þar um falskar minningar, sem og brauðfæturna sem þær bældu virðast standa á, því hér er um að ræða umdeilt og vandmeðfarið málefni sem fjalla þarf um af yfirvegun og þekkingu. Væri ekki úr vegi að háskóla- og fræðasamfélagið á Íslandi fjallaði um það opinberlega, svo reisa mætti rönd við röngum sakargiftum í þessum efnum, sem og þeim sársauka sem þeim óhjákvæmilega fylgir.
Skoðun

Halldór 24.05.2025
skrifar

Hvers virði er lambakjöt?
Hafliði Halldórsson skrifar

Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð
Elín Íris Fanndal skrifar

Þjóðareign, trú og skattar
Svanur Guðmundsson skrifar

Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt?
Einar G Harðarson skrifar

Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum
Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar

Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu?
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar

Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan
Njáll Trausti Friðbertsson skrifar

Opið bréf til stjórnvalda
Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar

Við skuldum þeim að hlusta
Ólafur Adolfsson skrifar

„Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv.
Flosi Þorgeirsson skrifar

Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum?
Ása Lind Finnbogadóttir skrifar

Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs!
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar

Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla
Rósa Guðbjartsdóttir skrifar

Stéttarkerfi
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza
BIrgir Finnsson skrifar

Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025
Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar

Æfingin skapar meistarann!
Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar

140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu
Sigurður G. Guðjónsson skrifar

Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu
Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar

Traust í húfi
Eyjólfur Ármannsson skrifar

Verðmætasköpun án virðingar
Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar

Daði Már týnir sjálfum sér
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Samhljómur við náttúruna og sjálfbæra þróun
Anna María Ágústsdóttir skrifar

Aðgerðir gegn mansali í forgangi
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar

Enginn á verðinum – um ábyrgð, framtíðarsýn og mikilvægi forvirkrar stjórnsýslu
Guðjón Heiðar Pálsson skrifar

Framtíðin fær húsnæði
Ingunn Gunnarsdóttir skrifar

Börnin sem deyja á Gaza
Elín Pjetursdóttir skrifar