Vér hinir óskeikulu Kristján Guðmundsson skrifar 25. ágúst 2011 06:00 Nafn á grein þessari má lesa út úr grein Brynjars Níelssonar hæstaréttarlögmanns í Fréttablaðinu er birtist hinn 6. ágúst 2011. Lögmaðurinn finnur allt til að verja úrskurði dómara Hæstaréttar Íslands í anda þess að þeir sem þar komast til valda séu óskeikulir. Hann telur að ekki megi hrófla við dómi sem þegar hefur verið upp kveðinn og dómur sé hinn endanlegi sannleikur. Því miður er það svo í íslensku réttarfari að þar hefur þróast spilling sem er verri en nokkur spilling sem áður hefur sést í íslensku samfélagi. Spilling þessi einkennist af umsögn lögmanna sem leitað er til varðandi rekstur máls fyrir dómi að lögmennirnir biðja skjólstæðinga sína að leggjast á bæn og biðja þess að ákveðnir dómarar komi ekki til með að hafa afskipti af málinu. Dómar eru kveðnir upp án tillits til þess sem mælt er fyrir í lögum og eru slíkir utanlaga dómar miklu fleiri en hinn almenni borgari gerir sér grein fyrir. Dómur sem kveðinn er upp á að vera til að skýra fyrir almenningi hvernig eigi að túlka umrætt orðalag í lögum sem sett eru af Alþingi í þeim tilgangi að samskipti þegnanna geti gengið með sem fæstum árekstrum. Þegar uppkveðnir dómar í sams konar eða sambærilegum málum eru á einn veg í dag en á allt annan veg á morgun er ekki hægt að taka úrskurð dómara alvarlega. Framkvæmd dóma á Íslandi er eins og „rússnesk rúlletta“ því dómurinn sem kveðinn var upp í gær vegna skemmdarverka getur í sambærilegu máli verið úrskurðaður af dómara sem löglegt skemmdarverk á morgun. Ekkert samræmi er í túlkun dómara innan hins íslenska réttarkerfis. Fyrir hendi eru skriflegar sannanir fyrir því að álit eins dómara er öndvert við álit dómsstjóra sama dómstóls. Þegar slíkar sannanir eru fyrirliggjandi um mistúlkanir dómara á lögum og hringlandahátt er því fylgir innan réttarkerfisins án þess að þegnarnir fá leiðréttingu sinna mála er þjóðfélagið á hættulegri braut. Notkun dómara á fölsuðum gögnum í úrskurðum sínum og að þeir neiti að fara að lögum er ekkert einsdæmi. Fyrir hendi eru fleiri en eitt dæmi (mörg) um að dómari hafi notað falsað gagn sem úrskurður dómarans var byggður á. Þegar réttarkerfið er komið út á svo hála braut að úrskurður dómara er byggður á fölsuðu gagni er stutt í að farið verði í að höggva mann og annan. M.ö.o. að menn hlíta ekki úrskurði dómara heldur taka lögin í sínar eigin hendur. Lagasetning og tilkoma skipunar á dómara var til þess ætluð að með því yrði hægt að koma í veg fyrir þau vígaferli sem viðgengust á öldum áður. Réttarkerfið sem spannst upp í kringum dómara er orðið að myllusteini um háls þjóðarinnar því ekkert er að marka uppkveðna dóma. Þjóðin þarf að halda uppi stórum hópi manna sem níðast á þegnunum með geðþóttaúrskurðum sem kallast dómar en dómarnir eru þess eðlis að þeir leysa engan vanda innan samfélagsins. Eina atriðið sem leyst er með uppkvaðningu dóms er að það eru fluttir peningar frá aðilum að málarekstri og yfir til lögmanna. Sá sem tapar máli þarf að greiða tvisvar til þrisvar sinnum meira í kostnað en sá sem fær jákvæðan úrskurð dómara. Sá sem verður undir í ræðuhöldum fyrir dómara getur ekki leitað réttar síns á neinn hátt. Lögbrot dómara eru fengin mönnum innan sömu starfsklíku til skoðunar og gera ekkert annað en að hvítþvo misgjörðirnar sem felast í dómsorðum. Þvottastöðvar þessar eru Nefnd um dómarastörf og Dómstólaráð. Þeir sem eru skipaðir í þessa nefnd og ráð koma úr hópi dómara og að ætlast til þess að þeir fari að kasta rýrð á starfsfélaga sína er álíka og að bregðast samtökum á borð við bandarísku mafíuna. Dómar sem falla undir utanlaga-dómsúrskurð eru miklu fleiri en fólk í landinu gerir sér grein fyrir. Dæmi er um að uppkveðinn dómur boðaði að ofbeldi væri löglegt ofbeldi og þeir sem urðu fyrir ofbeldinu fengu heimild dómarans til að snúast til varnar og beita ofbeldi gegn ofbeldismanninum. Erum við ekki komin á það stig í dómararuglinu að fyrri tíma vígaferli eru innan seilingar? Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðanir Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira