Ekkert aldurstakmark þegar Amor knýr dyra 20. febrúar 2011 16:21
Því hefur oft verið fleygt að ástin spyrji ekki um aldur og það má víst til sanns vegar færa hér á Íslandi. Freyr Gígja Gunnarsson skoðaði nokkur af heitustu nýju pörunum og komst að því að fólk kippir sér lítið upp við að áratugur skilji að.Þórir Snær Sigurjónsson og Elsa María Jakobsdóttir (9 ár) Kvikmyndaframleiðandinn Þórir Snær Sigurjónsson hefur verið að gera góða hluti með félögum sínum hjá kvikmyndafyrirtækinu Zik Zak en það á meðal annars hlut í 31 Eddu-tilnefningu. Að undanförnu hefur unnusta hans, Elsa María Jakobsdóttir, verið honum innan handar í kynningarstarfi á kvikmyndum eins og Brimi og Gauragangi.Karl Sigurðsson og Þorbjörg Marinósdóttir (11 ár) Eitt óvæntasta par síðasta árs er án nokkurs vafa Karl Sigurðsson, borgarfulltrúi og Baggalútur, og Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós. Þau skötuhjú voru áberandi í næturlífinu á síðasta ári en virðast hafa dregið úr því og einbeita sér nú örugglega að því að hafa það notalegt heima.Hannes Friðbjörnsson og Guðrún Gunnarsdóttir (12 ár) Eitt skemmtilegasta par síðustu ára er tvímælalaust þau Hannes Friðbjörnsson, trommari í Buff, og Guðrún Gunnarsdóttir söngkona. Guðrún var skilin við eiginmann sinn Valgeir Skagfjörð þegar amor skaut örvum sínum í hjartastað þeirra Hannesar. Þau tvö hafa gert nokkuð af því að spila saman.Auðunn Blöndal og Íris Björk Jóhannesdóttir (10 ár) Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal hefur lengi verið meðal heitustu piparsveina landsins en þættir hans og Sveppa hafa notið einstakra vinsælda. Það kom því engum á óvart að Auðunn skyldi næla í ungfrú Reykjavík, Írisi Björk Jóhannesdóttur, en þau tvö hafa verið óaðskiljanleg síðan ástin tók öll völd.Egill "Gillz" og Gurrý Jónsdóttir (11 ár) Egill Einarsson, metsöluhöfundur og sjónvarpsstjarna, var lengi vel hluti af karlagenginu Kallarnir.is sem nutu mikillar kvenhylli. Eftir að Egill gerðist einkaþjálfari og síðar rithöfundur óx aðdáun kvenfólks til muna á þessum kraftajötni en það var neminn og fyrirsætan Gurrý Jónsdóttir sem hreppti hjarta hans. Svo skemmtilega vill til að Ásgeir Kolbeinsson er móðurbróðir Gurrýjar þannig að þeir geta rætt saman um líkamshár og fjarlægingu þeirra í fjölskylduboðum.Þorsteinn M. Jónsson og Ingibjörg Egilsdóttir (22 ár) Þorsteinn hefur löngum verið sagður hafa góðan smekk fyrir góðum vínum og konum. Skemmst er að minnast áralangs sambands hans og fegurðardísarinnar Önnu Lilju Johansen sem var töluvert yngri en hann. Þorsteinn er nú, samkvæmt Séð og heyrt, í sambandi við aðra fegurðardrottningu og fyrirsætu, nefnilega Ingibjörgu Egilsdóttur.Anna Margrét Björnsson og Þórður Grímsson (13 ár) Kynningarstjóri Hörpunnar, Anna Margrét Björnsson, og unnusti hennar, Þórður Grímsson, hafa alltaf verið vel með á nótunum þegar tíska og listir eru annars vegar. Þau eru einnig saman í hljómsveitinni Two Step Horror.Anna Lilja Jóhönnudóttir og Karl Thorberg Birgisson (26 ár) Það vakti verulega athygli þegar Séð og heyrt greindi frá sambandi Karls Th. Birgissonar, núverandi ritstjóra Eyjunnar, og háskólastúdínunnar Önnu Lilju Jóhönnudóttur. Karl Th. er séntilmaður og þykir hafa góðan smekk og því ekkert óeðlilegt við það að ungar stúlkur skuli líta til hans hýru auga.Ásgeir Kolbeinsson og Sunna Þorkelsdóttir (12 ár) Ekki er hægt að segja skilið við þessa upptalningu án þess að minnast á sjálfan Ásgeir Kolbeins fjölmiðlung. Hann hefur um árabil verið einn heitasti piparsveinn landsins en hjörtu yngismeyja virðast hafa brostið um þessar mundir því hinn ungi laganemi Sunna hefur víst náð að temja dýrið.
Mest lesið Svona verður röð laganna á laugardaginn Lífið Einhleypir þokkasveinar Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Þessi tíu lög komust í úrslit Lífið Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Lífið Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Lífið Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Lífið Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið Fleiri fréttir Vinsælir í Basel en hversu hátt ná þeir? Herra Hnetusmjör í aðalhlutverki hjá Laufeyju Framtíðin óljós hjá Sigrúnu Ósk Einhleypir þokkasveinar Svona verður röð laganna á laugardaginn Sjóðheitar skvísur í íslenskri hönnun Fjölskylda truflaði flutning Ísraela Þessi tíu lög komust í úrslit VÆB bræður á forsíðu BBC „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikið sorg“ Brando ekki að lóða og fisléttur Dylan Banna meinta kynferðisbrotamenn á rauða dreglinum Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Stefán Teitur á skeljarnar Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Sigga Heimis keypti einbýli í Skerjafirði Sigga Beinteins selur „eðalvagninn“ Að Illuminati stjórni öllu milli himins og jarðar Hera Björk mun kynna stigin Brunar um á tugmilljón króna glæsibifreið 108 kílóum léttari: „Þessi tíu ár í grunnskóla voru eiginlega stanslaust einelti“ Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Tekur nú eftir því hversu margir hafa farið í hárígræðslu Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Þessi lönd komust áfram í úrslit „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Einar og Milla eiga von á dreng Sjá meira