Aðstoðarþjálfari Boston búinn að semja við Chicago í miðjum úrslitum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2010 13:00 Tom Thibodeau og Doc Rivers. Mynd/AP
Tom Thibodeau, aðstoðarþjálfari Doc Rivers hjá Boston Celtics, og hugmyndasmiðurinn á bak við hinn magnaða varnarleik liðsins verður næsti þjálfari Chicago Bulls samkvæmt fréttum vestra. Bulls mun ráða hann til tveggja ára og hann fær 6,5 milljónir dollara fyrir. NBA-deildin gerir enga athugasemd við það að félög ráði sér nýjan þjálfara þótt að lokaúrslitin standi yfir en talsmaður deildarinnar segir að ákveðið hafi verið að tilkynna ekki formlega um ráðningu Tom Thibodeau fyrr en eftir lokaúrslitin. Doc Rivers var ánægður að heyra þessar fréttir þrátt fyrir að þær komi í miðjum lokaúrslitum liðsins á móti Los Angeles Lakers en leikur tvö er í Los Angeles í nótt. „Ég vona að þetta sé satt en ég ætla samt ekkert að tjá mig um þetta. Við ætlum að einbeita okkur að úrslitunum, þar spila tvö lið, Lakers og Celtics. Við einbeitum okkur bara að þeim liðum núna," sagði Doc Rivers. Rivers stóðst þó ekki freistinguna að hrósa aðstoðarmanni sínum. „Tom á þetta skilið. Hann er besti kosturinn í boði og ég hef sagt það undanfarin þrjú ár," sagði Doc Rivers en Thibodeau hefur hjálpað honum að koma Celtics tvisvar sinnum í lokaúrslitin á undanförnum þremur árum. Thibodeau er búinn að vera aðstoðarmaður í NBA-deildinni í 18 ár og hefur á þeim tíma starfað fyrir sjö mismunandi félög. Hann kom einnig til greina sem næsti þjálfari New Orleans og New Jersey. Annar leikur Los Angeles Lakers og Boston Celtics fer fram í nótt og hefst á miðnætti að íslenskum tíma. Lakers vann fyrsta leikinn frekar örugglega en fyrstu tveir leikirnir fara fram í Los Angeles en síðan taka við þrír leikir í Boston.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Shaq í Stjörnuna Körfubolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira