Er San Antonio tilbúið að fórna Ginobili fyrir Stoudemire? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. janúar 2010 23:30 Amar’e Stoudemire treður boltanum hér í körfuna. Mynd/AP
San Antonio Spurs hefur mikinn áhuga á að næla í Amar'e Stoudemire hjá Phoenix Suns og það er skrifað um það í bandarískum fjölmiðlum að forráðamenn Spurs séu að undirbúa það að bjóða Phoenix sterka leikmenn í skiptum fyrir Stoudemire. San Antonio Spurs er búið að tapa fimm af síðustu sex leikjum og er dottið niður í sjötta sætið í Vesturdeildinni. Liðið er búið að vinna 25 leiki og tapa 18 leikjum á tímabilinu. San Antonio Spurs er búið að vinna fjóra NBA-meistaratitla frá og með árinu 1999 en Tim Duncan er farinn að eldast og þarf greinilega meiri hjálp inn í teig ætli liðið að eiga eitthvað í lið eins og Los Angeles Lakers. Richard Jefferson og Antonio McDyess komu til Spurs fyrir tímabilið en hafa ekki náð að hjálpa liðinu sem skildi. Argentínumaðurinn Manu Ginobili hefur oft spilað betur með Spurs en í vetur og meðalskor hans er komið niður í 12,8 stig í leik eftir að hafa verið 15,5 stig í leik í fyrra og 19,5 stig að meðaltali fyrir tveimur árum. Það gæti þó orðið erfitt að fórna Ginobili sem hefur oft gert útslagið í jöfnum leikjum liðsins með fjölhæfni sinni og klókindum. Samningur Manu Ginobili rennur út í sumar og þá getur Amar'e Stoudemire líka losnað út úr sínum samningi. Þeir eru því líklegir til að næla sér í góða samninga næsta sumar en fram að þeim tíma er ekki úr myndinni að þeir reyni fyrir sér á nýjum stöðum. Hvað sem gerist er ljóst að mikið verður örugglega mikið skrifað um málið í bandarískum fjölmiðlum þar til að félagsskiptaglugganum lokar
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Naumur sigur dugði City Enski boltinn Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira