Amar´e Stoudemire hefur ákveðið að ganga í raðir New York Knicks en hann kemur til félagsins frá Phoenix Suns.
Þetta eru fyrstu stóru félagaskipti sumarsins og enn er beðið eftir því hvað LeBron James og Dwyane Wade gera.
Hann mun væntanlega skrifa undir fimm ára samning við Knicks sem ætti að færa honum í kringum 100 milljónir dollara.