Fyrir neðan allar hellur 27. júlí 2010 06:00 Umræða um kaup Magma Energy á HS orku er stórfurðuleg og yfirleitt á nokkurn veginn sama plani og jarðhitinn sem um er rætt. Eftir að ég benti, í fréttum Sjónvarpsins, á þá alkunnu staðreynd að undir handleiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa margar þjóðir misst yfirráð yfir auðlindum sínum og á þá hættu sem felst í aukinni skuldsetningu ríkisins, fjallaði Fréttablaðið um málið í dálki sem kallaður er Frá degi til dags. Á þeim vettvangi fá blaðamenn tækifæri til að viðra skoðanir sínar í hæðnistón. Hlutur ReykjavíkurÞað er skiljanlegt að erfitt geti verið að vera sniðugur á hverjum degi en það er ekki hægt að láta óátalið að hvað eftir annað séu skrifaðar skrítlur sem eru algjörlega á skjön við veruleikann. Fyrst spyr höfundur hvort AGS hafi komið við sögu þegar Orkuveita Reykjavíkur seldi hlut í HS orku, sem hún hafði keypt af Hafnarfjarðarbæ, til Magma Energy og bendir á að þá hafi einmitt Óskar Bergsson verið í borgarstjórn og Óskar Bergsson sé framsóknarmaður. Bingó! Talandi um að setja alltaf allt í hjólför flokkspólitíkur. En hvað um það. Nei, það var ekki Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sem fékk Orkuveitu Reykjavíkur til að selja sinn hlut í HS orku. Það var Samkeppniseftirlitið sem úrskurðaði að OR mætti ekki eiga hlutinn og yrði að selja. OR, sem hafði hlaupið undir bagga og haldið HS orku í opinberri eigu þegar Hafnarfjarðarbær ákvað að selja sinn hlut (stjórn Samfylkingar svo að við höldum okkur við flokkspólitíkina), taldi þá réttast að Hafnarfjarðarbær fengi hlutinn aftur. Það vildi Samfylking í Hafnarfirði ekki sjá og úr varð dómsmál. OR tapaði og varð að selja hlutinn. Þess vegna var haldið opið söluferli í 8 mánuði. Aðeins eitt tilboð barst. Tilboð Magma Energy. Reykjavík bauð ríkinu að kaupa hlutinn. Fjármálaráðherra hafði ekki áhuga á því svo ekki sé minnst á AGS. Lífeyrissjóðirnir vildu ekki kaupa heldur. Reykjavík átti því engan annan kost, samkvæmt lögum og að undangengnum úrskurði samkeppnisyfirvalda og dómstóla, en að selja Magma hlutinn í HS orku. Nefnd um erlenda fjárfestinguHöfundur gríndálksins í Fréttablaðinu spyr líka „var það vegna þrýstings frá AGS sem fulltrúi Framsóknarflokksins í eftirlitsnefnd um erlenda fjárfestingu hreyfði ekki við mótbárum, þótt áhöld væru uppi um kaup Magma á HS orku í gegnum skúffufyrirtæki í Svíþjóð stæðist lög?" Það var nú einmitt það sem nefndin gerði. Hún leitaði umsagnar þeirra lögfræðinga sem best þekkja til og fylgdi svo leiðsögn þeirra í svari til viðskiptaráðherra en benti ráðherra á að hann hefði vald til að koma í veg fyrir að af kaupunum yrði. Ráðherra hefði getað lagst gegn fjárfestingunni en kaus að staðfesta úrskurð nefndarinnar. Nefnd um erlenda fjárfestingu beindi því til ráðherra í janúar sl. að vinna að endurskoðun laganna. Þeirri áskorun hefur ekki verið sinnt. Loks lagði fulltrúi Framsóknar í nefndinni til að hún yrði lögð niður enda sýndi þetta mál fram á fáránlega stöðu hennar. RíkisstjórninTil viðbótar hafði nefndin oft og fyrir löngu bent viðskiptaráðuneytinu á að ef menn vildu koma í veg fyrir hluti á borð við þá sem nú hafa gerst þyrfti að breyta lögum. Það var ekki gert. Þvert á móti, nefnd um endurskoðun laganna sem Björgvin G. Sigurðsson hafði komið á fót hætti störfum. Hvað varðar lögin um nýtingartímann hefur stjórnin haft allan veturinn til að athafna sig en ekkert gert og loks virðist alveg hafa gleymst að fjármálaráðherra bauðst að leysa hlutinn til ríkisins en afþakkaði það. Niðurstaðan nú er því í samræmi við vilja ríkisstjórnarinnar. Umræðunni haldið á villigötumÍ fréttinni á RÚV kvartaði ég undan því að umræðan væri á villigötum. Þá er stokkið fram til að halda umræðunni utan vega og helst úti í mýri. Af umræðum síðustu vikna að dæma, og ofangreindum athugasemdum í Fréttablaðinu, mætti ætla að ekkert sé að því að fyrirtæki með aðsetur í Stokkhólmi, London eða Napolí kaupi hér orkuvinnslufyrirtæki en að ef höfuðstöðvarnar eru í Winnipeg eða Toronto farist himinn og jörð. Umræðan hlýtur að eiga að snúast um það hvort íslenskar auðlindir og nýting þeirra eigi að vera alfarið á hendi Íslendinga, ekki hvort eigendur Magma séu með skrifstofu í Kanada eða Svíþjóð. Menn virðast svo einungis vera flokkaðir í tvo hópa. Annaðhvort séu þeir tilbúnir til að láta ríkið ógilda samninga annarra eftir að allir frestir eru útrunnir og fara gegn úrskurðum samkeppnisyfirvalda og niðurstöðum dómstóla eða menn hljóta að vilja einkavæða náttúruauðlindir þjóðarinnar og helst til útlendinga. Hvað varðar afstöðuna til þeirrar grundvallarspurningar hvort Íslendingar eigi að tryggja innlent eignarhald á mikilvægustu náttúruauðlindum er ég eindregið þeirrar skoðunar. Framsóknarmenn hafa enda lengi barist fyrir því að kveðið væri á um slíkt í stjórnarskrá. En framsóknarmenn vilja líka að fylgt sé þeim lögum sem eru í gildi og líki mönnum þau ekki sé lögunum breytt. Það getur reynst erfitt að fylgja miðjustefnu á óróatímum en á óróatímum er alveg sérstaklega mikilvægt að missa ekki sjónar af hinum gullna meðalvegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Barnið vex en Fésbókin ekki Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar Skoðun Eru brotalamir menntakerfisins fyrst að koma upp núna? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun