Handbolti

Gunnar Steinn með stórleik er Drott tryggði sér oddaleik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson.

Gunnar Steinn Jónsson átti stórleik er Drott náði að tryggja sér oddaleik gegn Ystad í undanúrslitum sænsku úrslitakeppninnar í handbolta.

Drott vann fjórða leik liðanna í undanúrslitunum á heimavelli sínum í gærkvöldi, 26-25. Staðan í hálfleik var 13-11, Drott í vil.

Gunnar Steinn var markahæstur í leiknum í gær með tíu mörk, þar af sex úr vítum.

Á sunnudag ræðst það svo hvort liðið mætir Sävehof í úrslitaleiknum um sænska meistaratitilinn í Malmö þann 8. maí næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×