Handbolti

Dagur áfram með Austurríki

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Mynd/DIENER

Dagur Sigurðsson hefur framlengt samningi sínum við austurríska handknattleikssambandið fram á sumar. Þá leikur Austurríki tvo leiki um að komast á HM í Svíþjóð.

Eftir þá leiki verður þráðurinn væntanlega tekinn upp að nýju.

Gríðarleg ánægja hefur verið með störf Dags í Austurríki en hann kom liðinu í milliriðil á EM í janúar.

Miðað við frammistöðuna á EM ætti liðið að leggja Holland í umspilsleikjunum og komast á HM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×