Mörgum þótti körfuboltakappinn Gilbert Arenas sleppa vel með 30 daga dóm í lágmarksöryggisfangelsi, í ætt við Kvíabryggju, fyrir að koma með byssur í búningsklefa Washington Wizards.
Áður en Arenas fer á Kvíabryggju þarf hann að fara í alvöru fangelsi í heila tvo daga. Þar mun hann gangast undir læknisskoðun og annað.
Yfirvöld vilja líka með þessu sýna Arenas hverju hann var nálægt að lenda í.