Dwight Howard valinn besti varnarmaðurinn annað árið í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. apríl 2010 10:30 Dwight Howard miðherji Orlando Magic. Mynd/AP
Dwight Howard miðherji Orlando Magic var í gær útnefndur varnarmaður ársins í NBA-deildinni í körfubolta en þetta er annað árið í röð sem hann hlýtur þessi verðlaun. Howard varð í vetur fyrsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar sem er efstur bæði í fráköstum og vörðum skotum tvö ár í röð. Dwight Howard fékk alls 576 stig í kjöri körfuboltafréttamanna víðsvegar um Bandaríkin en hann var í fyrsta sæti hjá 110 af 122 þeirra. Josh Smith hjá Atlanta var annar í kjörinu og í þriðja sætinu kom síðan Gerald Wallace hjá Charlotte. Howard var með 13,2 stig og 2,8 varin skot að meðaltali í leik í vetur en hann er sjöundi leikmaðurinn sem nær því að vera kosinn varnarmaður ársins tvö ár í röð. Hinir eru Ben Wallace, Hakeem Olajuwon, Dikembe Mutombo, Alonzo Mourning, Dennis Rodman og Sidney Moncrief. Howard varð yngsti varnarmaður ársins frá upphafi þegar hann var kosinn í fyrra og það er ekkert annað sem bendir til þess að þessi 24 ára strákur geti verið áskrifandi að þessum verðlaunum næstu árin. Ben Wallace og Dikembe Mutombo eiga metið en þeir voru fjórum sinnum kosnir varnarmenn ársins.
NBA Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Klopp býður við rasískum ásökunum Fótbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira