KR með fullt hús stiga Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 21. október 2009 21:18 Mynd/Vilhelm
KR vann sinn þriðja leik í röð í Iceland Express-deild kvenna er liðið lagði Grindavík á útivelli, 77-58. Alls fóru þrír leikir fram í deildinni í kvöld. Snæfell tapaði sínum fyrsta leik er það tapaði stórt fyrir Íslandsmeisturum Hauka á útivelli, 70-43. Óvæntustu úrslit kvöldsins urðu þegar að Hamar tapaði einnig sínum fyrsta leik á tímabilinu er liðið tapaði fyrir Njarðvík á útivelli, 83-61. KR átti ekki í miklum vandræðum með Grindvíkinga. Liðið leiddi með sjö stigum í hálfleik, 27-20, og vann svo þriðja leikhluta með samtals sautján stiga mun. Signý Hermannsdóttir skoraði átján stig fyrir KR og tók tólf fráköst. Þrír leikmenn voru með tólf stig. Stigahæst hjá Grindavík var Pálína Skúladóttir með 22 stig. Haukar voru með örugga forystu allan leikinn gegn Snæfelli en staðan í hálfleik var 39-24. Heather Ezell skoraði 26 stig fyrir Hauka en hjá Snæfelli var Kristen Green stigahæst með fjórtán stig. Sigur Njarðvíkur á Hamar var sömuleiðis afar öruggur. Liðið tók góðan sprett í öðrum leikhluta og náði að koam sér í tíu stiga forystu í hálfleik, 34-24. Shantrell Moss skoraði nítján stig fyrir Njarðvík, tók tólf fráköst og gaf sjö stoðsendingar. Ólöf Helga Pálsdóttir skoraði sautján stig. Hjá Hamar var Koren Schram stigahæst með 20 stig. KR er nú eitt í efsta sæti deildarinnar með sex stig eftir þrjár umferðar. Haukar og Snæfell eru með fjögur stig. Keflavík er eina stigið sem er enn án stiga.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira