Cleveland fór illa með meistara Lakers á þeirra eigin heimavelli Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. desember 2009 08:00 Það munaði oft litlu að það syði upp úr í leiknum. Mynd/AP
Cleveland Cavaliers vann sannfærandi fimmtán stiga sigur á Los Angeles Lakers, 102-87, í stóra jólaleik NBA-deildarinnar í nótt. Sigur Cleveland var aldrei í mikilli hættu þar sem meistararnir voru ekki líkir sjálfum sér í þessum leik. Lakers hafði unnið 16 af síðustu 17 leikjum sínum fyrir leikinn en sjálfstraust sem fylgir slíkri sigurgöngu var aldrei sjáanlegt hjá pirruðu og kraftlausu Lakers-liði. Kobe Bryant var sá eini hjá Lakers sem reyndi en reyndi kannski alltof mikið. Kobe var með 35 stig,9 fráköst og 8 stoðsendingar en hann hitti aðeins úr 11 af 32 skotum sínum í leiknum. Pau Gasol var aðeins með 11 stig og liðið tapaði með 21 stigi þegar hann var inn á vellinum. Mo Williams lék mjög vel með Cleveland og var með 28 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst en LeBron James bætti við 26 stigum og 9 stoðsendingum. Shaquille O´Neal var með 11 stig og 7 fráköst á 22 mínútum og tróð boltanum fimm sinnum í körfu Lakers-liðsins í leiknum. Ray Allen skoraði 18 stig og Rajon Rondo var með 17 stig, 13 fráköst og 8 stoðsendingar þegar Boston vann 86-77 sigur á Orlando Magic þrátt fyrir að leika án Paul Pierce og missa Kvein Garnett meiddan af velli. Boston vann annan leikhlutann 20-8 og lagði þar gruninn að sigrinum. Vince Carter var með 27 stig fyrir Orlando og Dwight Howard tók 20 fráköst en skoraði þó aðeins fimm stig. Dwyane Wade var með 30 stig, 9 fráköst og 5 stoðsendingar í 93-87 sigri Miami Heat á útivelli á móti New York Knicks. Danilo Gallinari var með 26 stig fyrir New York.
NBA Mest lesið Segja Frey hafa logið að leikmönnum Fótbolti Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Hafi rætt við Rúnar og Börk og allir jafn undrandi Íslenski boltinn Freyr og Kortrijk segja belgíska blaðið ljúga Fótbolti Aron Einar snýr aftur til Katar Fótbolti Eyddi Instagram eftir kynferðisleg skilaboð Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Mörkin úr Bestu: Sjáðu perlur Gylfa og Ísaks Íslenski boltinn Ótrúleg bæting í Bakgarðshlaupinu: „Allt hægt ef viljinn er fyrir hendi“ Sport Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira