Handbolti

Dagur hafði betur gegn Ólafi og félögum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin.
Dagur Sigurðsson, þjálfari Füchse Berlin. Nordic Photos / Bongarts

Füchse Berlin vann í dag góðan sigur á Rhein-Neckar Löwen, 33-28, á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Dagur Sigurðsson er þjálfari Füchse Berlin og mætti sínum gömlu landsliðsfélögum sem leika með Rhein-Neckar Löwen.

Ólafur Stefánsson skoraði fimm mörk fyrir Löwen og Guðjón Valur Sigurðsson eitt. Snorri Steinn Guðjónsson komst ekki á blað að þessu sinni.

Rúnar Kárason skoraði tvö mörk fyrir Füchse Berlin sem hafði fimm marka forystu í hálfleik, 16-11.

Füchse Berlin er í níunda sæti deildarinnar með sextán stig en Löwen í því fjórða með 21.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×