NBA í nótt: Aftur vann Lakers í framlengingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. nóvember 2009 09:31 Kobe Bryant, leikmaður Lakers. Nordic Photos / Getty Images
LA Lakers vann í nótt sinn annan leik í röð í framlengingu - í þetta sinn gegn Houston Rockets, 103-102. Kobe Bryant var stigahæstur hjá Lakers með 41 stig og Andrew Bynum var með sautján stig og sautján fráköst. Carl Landry var stigahæstur hjá Houston með 20 stig, Luis Scola var með sextán stig og þrettán fráköst. Ron Artest og Trevor Ariza voru báðir að mæta sínum gömlu félögum en Artest fór frá Houston til Lakers í sumar og Ariza frá Lakers til Houston. Báðir settu niður þrista á lokamínútu fjórða leikhluta. Fyrst Artest og kom hann þá Lakers yfir, 92-89, þegar 30 sekúndur voru til leiksloka. Svo Ariza þegar fimmtán sekúndur voru eftir. Ariza fékk svo tækifæri til að tryggja Houston sigurinn í framlengingunni en Derek Fisher kom í veg fyrir það. Toronto vann Detroit, 110-99. Andrea Bargnani skoraði 22 stig fyrir Toronto og tók tólf fráköst þar að auki. Chris Bosh var stigahæstur með 25 stig. Orlando vann Phoenix, 122-100. Ryan Anderson var með 20 stig og tíu fráköst fyrir Orlando og Dwight Howard var með 25 stig. Þetta var fyrsti tapleikur Phoenix í haust. Denver vann New Jersey, 122-94. Chauncey Billups og Carmelo Anthony fóru fyrir Denver í þriðja leikhluta er liðið skoraði 44 stig og tryggði sér þar með sigurinn. Þetta er besta byrjun Denver í deildinni í 24 ár en liðið er enn taplaust eftir fimm leiki. Miami vann Washington, 93-89. Dwyane Wade skoraði 40 stig í leiknum, þar á meðal sigurkörfuna þegar 25 sekúndur voru til leiksloka. Indiana vann New York, 101-89. TJ Ford skoraði sextán stig í leiknum, þar af átta á síðustu þremur mínútum leiksins. Þetta var fyrsti sigur Indiana á tímabilinu. Boston vann Minnesota, 92-90. Þetta var fyrsti leikur Kevin Garnett með Boston í Minnesota síðan hann fór til Boston árið 2007. Hann skoraði tólf stig og tók ellefu fráköst. Boston er enn taplaust á leiktíðinni. Atlanta vann Sacramento, 113-105. Joe Johnson og Jamal Crawford skoruðu 26 stig hvor fyrir Atlanta. New Orleans vann Dallas, 114-107, í framlengdum leik. Peja Stojakovic náði að tryggja New Orleans framlengingu með þristi á lokasekúndum fjórða leikhluta. Chris Paul skoraði 39 stig í leiknum, þar af sex í framlengingu. Golden State vann Memphis, 113-105. Monta Ellis var með 24 stig og tólf stoðsendingar. Anthony Morrow var einnig með 24 stig og Corey Maggette 20. Þetta var fyrsti sigur Golden State á tímabilinu.
NBA Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Enski boltinn Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira