Doc Rivers þjálfar lið Austurdeildarinnar 22. janúar 2008 02:57 Doc Rivers stýrir úrvalsliði Austurdeildarinnar í stjörnuleiknum Nordic Photos / Getty Images
Doc Rivers, þjálfari Boston Celtics, mun stýra liði Austurdeildarinnar í stjörnuleiknum í NBA sem haldinn verður í New Orleans þann 17. febrúar. Það eru þjálfarar liðanna tveggja sem eru með besta árangurinn í Austur- og Vesturdeild þann 3. febrúar nk. sem fá þann heiður að stýra úrvalsliðum Austur- og Vesturdeildar í stjörnuleiknum. Boston hefur unnið 33 leiki og tapað aðeins 6 og því hefur Rivers þegar tryggt að hann verði þjálfari austurliðsins. Enn er talsvert í að ráðist hver stýrir vesturliðinu, enda mörg lið í harðri samkeppni um efsta sætið þar. Þó er ljóst að það verður ekki Mike D´Antonio, þjálfari Phoenix, því samkvæmt reglum mega þjálfarar ekki stýra stjörnuliði tvö ár í röð og ef Phoenix verður með besta árangurinn í Vesturdeildinni þann 3. febrúar - verður það þjálfari liðsins í öðru sæti sem þjálfar í stjörnuleiknum. Á fimmtudagskvöldið verður tilkynnt hverjir verða í byrjunarliðum austur- og vesturliðanna í stjörnuleiknum, en valið er byggt á kosningu á heimasíðu deildarinnar www.nba.com. Þjálfarar í deildinni velja svo varamenn liðanna tveggja og niðurstöður úr því vali eru tilkynntar um mánaðamótin. Leikurinn verður sýndur beint í sjónvarpi í meira en 200 löndum um allan heim - þar á meðal á sjónvarpsstöðinni Sýn hér á Íslandi.
NBA Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Íslenski boltinn FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Kompany hneig niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Körfubolti Stólpagrín gert að „nasistamerki“ Fálkanna Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Fleiri fréttir Leik lokið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Miklu sterkari í lokin Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 98-90 | Fyrsti sigur Grindavíkur en Stjarnan bíður enn Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Uppgjörið: Höttur - ÍR 108-96 | Heimamenn sterkari í seinni Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Sýður á Hlyni eftir að met hans var bætt Sex handtekin vegna hrikalegs hneykslis í grískum körfubolta „Fjandinn hafi það, þetta versnar varla úr þessu“ Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Sjá meira