NBA í nótt: San Antonio lagði Denver Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. desember 2008 09:39 Tony Parker og félagar lögðu Denver í nótt. Nordic Photos / Getty Images
Tveir leikir fóru fram í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. San Antonio vann Denver og Dallas lagði Phoenix. San Antonio vann Denver, 108-91. Chauncey Billups átti aldrei þessu vant fremur slakan dag en síðan hann kom til Denver frá Detroit hafði félagið unnið tólf af fimmtán leikjum sínum. Tony Parker var stigahæstur hjá San Antonio með 22 stig og þeir Manu Ginobili og Tim Duncan voru með 21 stig hvor. Duncan var þar að auki með tólf fráköst og sjö stoðsendingar. Sigur San Antonio var öruggur en staðan í hálfleik var 61-41. Denver náði aldrei að ógna forystu San Antonio að nokkru ráði. Carmelo Anthony var stigahæstur hjá Denver með sextán stig og JR Smith kom næstur með fimmtán og tíu fráköst. Dallas vann Phoenix, 112-97, þar sem Dirk Nowitzky fór á kostum og skoraði 37 stig í fyrstu þremur leikhlutunum og alls 39 í leiknum öllum. Rétt eins og í hinum leiknum var sigur Dallas aldrei í hættu en staðan í hálfleik var 64-46. Steve Nash og Shaquille O'Neal léku með Phoenix á ný í nótt eftir að hafa misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla og veikinda. Amare Stoudemire skoraði flest stig í liði Phoenix eða 28 talsins. Nash kom næstur með 20 stig og tíu stoðsendingar. O'Neal skoraði ekki nema fjögur stig og tók fimm fráköst á þeim 26 mínútum sem hann lék í leiknum. Hjá Dallas skoraði Jason Terry nítján stig og Jose Barea átján. Erick Dampier var einnig góður og skoraði níu stig og tók fjórtán fráköst.
NBA Mest lesið Stuðningsfólk Fortuna brjálað út í Ísak Bergmann Fótbolti „Ég held það vilji enginn upplifa svona aftur“ Íslenski boltinn Tveir látnir og fleiri hundruð handtekin í óeirðum eftir sigur PSG Fótbolti Uppgjörið: KR - Vestri 2-1 | Atlarnir stálu sigrinum af Vestra Íslenski boltinn Kolbeinn er WBF heimsmeistari Sport Gísli Þorgeir meiddist enn á ný á öxl Handbolti Sævar hundeltur af blaðamönnum í Danmörku og Noregi Fótbolti Hispurslaus Amorim mun reynast Man United vel Enski boltinn Ósáttur Davíð Smári: Einn maður sem eyðileggur leikinn Íslenski boltinn „Þakklát fyrir skilning á þessum erfiðu tímum“ Körfubolti Fleiri fréttir „Þakklát fyrir skilning á þessum erfiðu tímum“ Indiana Pacers í úrslit í fyrsta sinn síðan árið 2000 Benedikt hættur með Tindastól Þór dregur liðið úr keppni í efstu deild Stjarnan sækir tvo öfluga Þórsara „Þetta er alvöru pakki og alvöru djobb“ „Þakklát fyrir að vera á leið aftur inn í jafn frábært umhverfi“ Keypti aðstoð frá norn til að hjálpa Knicks Knicks héldu sér á lífi Næstyngsta liðið fyrst til að rústa fjórum leikjum á leið í úrslitaeinvígið Átti einstakan leik og biðinni frá aldamótum að ljúka Grindavík sækir besta leikmann Hamars/Þórs Dani Rodriguez búin að semja við Njarðvík Daníel Guðni tekur við karlaliði Keflavíkur Náfrændurnir bestir en Thunder þarf bara einn sigur enn Hörður Axel tekur við Keflavík á nýjan leik „Frábær leikmaður en Jokic átti að vinna þessi verðlaun“ „Ódrepandi“ Knicks í sögubækurnar Emilie Hesseldal í Grindavík Úlfarnir bitu frá sér og unnu 42 stiga sigur Elsti leikmaðurinn til að fá MVP atkvæði Stórleikur Martins dugði ekki til og Alba Berlin úr leik Siakam sjóðheitur þegar Pacers komst í 2-0 „Sannleikurinn“ Edwards þarf að skjóta sópinn úr höndum OKC Íslandsmeistarinn Ægir Þór: „Þetta er bara algjör þvæla“ Sylvía snýr aftur með nýliðunum: „Hefur verið nauðsynlegur tími fyrir mig“ Blóðgaði dómara Eru klárlega með gæði til að spila í efstu deild Þýskalands Tók við MVP-styttunni og skoraði svo 38 stig Finnur fyrir miklum létti: „Algjört andlegt rugl“ Sjá meira