NBA í nótt: Fjórði sigur Orlando í röð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. nóvember 2008 12:04 Dwight Howard, leikmaður Orlando Magic. Nordic Photos / Getty Images
Orlando Magic vann í nótt sinn fjórða sigur í röð í NBA-deildinni í körfubolta er liðið vann Washington, 106-81. Alls fóru sex leikir fram í deildinni í nótt. Washington hefur tapað öllum sínum leikjum til þessa á tímabilinu en leikmenn liðsins réðu ekkert við Dwight Howard sem skoraði 31 stig og tók sextán fráköst. Gilbert Arenas og Brendan Haywood eru báðir meiddir og gátu því ekki spilað með Washington í nótt. Þar að auki fékk Caron Butler skurð á auga í öðrum leikhluta en spilaði þó á ný í síðari hálfleik. Washington er eina liðið í Austurdeildinni sem er enn án sigurs. Nick Young var stigahæstur í liðinu með 20 stig. Mickael Pietrus bætti við átján stig fyrir Orlando sem hefur nú unnið fjóra leiki í röð eftir að hafa tapað fyrstu tveimur á tímabilinu. Chicago varð fyrir áfalli í nótt er Kirk Hinrich meiddist og verður hann frá næstu þrjá mánuðina. Hann þarf að gangast undir aðgerð þar sem að hann reif liðband í þumalputta.Chicago tapaði fyrir Cleveland í nótt, 106-97, þar sem LeBron James var stigahæstur með 41 stig.Indiana vann New Jersey, 98-80. Danny Granger skoraði 23 stig fyrir Indiana en Vince Carter 31 stig fyrir gestina. Devin Harris, leikmaður New Jersey, meiddist í leiknum en hann skoraði 38 stig í sigri liðsins á Detroit á föstudagskvöldið.New Orleans vann Miami, 100-89, þar sem Chris Paul skoraði 21 stig fyrir New Orleans sem um leið vann sinn fyrsta leik í síðustu þremur leikjum.Phoenix vann Milwaukee, 104-96. Shaquille O'Neal var með 29 stig og ellefu fráköst fyrir Phoenix.Portland vann Minnesota, 97-93. LaMarcus Aldridge og Brandon Roy skoruðu hvor 24 stig í leiknum.
NBA Mest lesið Ferill Jake Paul í hættu Sport Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti „Einhver barnaskapur held ég“ Körfubolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Körfubolti Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Byrjaði níu leiki en valinn bestur Fótbolti Sjáðu dramatíkina í Kópavoginum og öll mörkin úr Bestu deild kvenna Íslenski boltinn Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Handbolti „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ Handbolti Fleiri fréttir „Einhver barnaskapur held ég“ Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Tindastóll - Grindavík 83-86 | Stilla Stólum upp við vegg Látinn aðeins 29 ára „Fánar úti um allt og fólk er að gíra sig upp í þetta“ „Það er komin pressa“ Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu OKC sópaði Lakers og methálfleikur hjá Mitchell „Það þarf að klára þriðja leikinn“ „Getum ekki mætt værukærar í næsta leik“ Blikar knúðu fram oddaleik Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Uppgjörið: Njarðvík - Haukar 75-70 | Njarðvík einum sigri frá titlinum Baldur hættur í Garðabænum Móðir heiðruð og ljótur olnbogi Búið spil hjá Elvari og félögum Martin stoðsendingahæstur í sigri Tryggvi Snær atkvæðamikill í súru tapi Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf „Mér er drullusama um þessa tölfræði“ Umfjöllun og viðtal: Haukar - Njarðvík 80-92 | Heimavallarréttinum stolið Einum sigurleik frá Bónus deildinni Óskar hættur en verður seint fullþakkað Funduðu með dómurum: „LeBron fær verstu meðferð sem ég hef séð“ Kunni betur á moppuna og fagnaði sigri „Leiðtoginn okkar og hjartað og sálin í liðinu“ Sjá meira