Hlutabréf lækkuðu um 2,4 prósent í Taílandi 21. desember 2006 14:43 Verðbréfamiðlari fylgist með gengi hlutabréfavísitölunnar í kauphöllinni í Bankok. Mynd/AFP
Gengi taílenska bahtsins hefur lækkað um 1,7 prósent í dag gagnvart bandaríkjadal auk þess sem gengi hlutabréfa lækkaði um 2,4 prósent eftir að forsætisráðherra Taílands greindi frá því að ríkisstjórnin styddi aðgerðir taílenska seðlabankans. Markaðurinn hefur hins vegar jafnað sig nokkuð eftir aðgerðir yfirvalda á Taílandi, sem tilkynntu á mánudag að þau hyggðust grípa til aðgerða til að sporna gegn háu gengi bahtsins. Afleiðingarnar urðu þær að gengi hlutabréfa féll um 15 prósent á þriðjudag. Aðgerðirnar áttu m.a. felast í því að hömlur yrðu settar á hlutabréfakaup alþjóðlegra fjárfesta í Taílandi en hátt gengi bahtsins hafði komið hart niður í fyrirtækjum í útflutningi. Ríkisstjórn landsins ákvað hins vegar síðdegis á þriðjudag, að draga ákvörðunina til baka enda óttuðust margir að hrunið í kauphöllinni í Bankok á Taílandi myndi hafa áhrif í öðrum Asíuríkjum líkt og árið 1997 þegar efnahagslag, sem hófst í Taílandi, gekk yfir Asíu. Gengi bréfa hækkaði um 11 prósent í kauphöllinni í Bankok í gær en lækkaði á ný í dag um 2,4 prósent eftir að Surayud Chulanont, forsætisráðherra Taílands, sagði að ríkisstjórn sín styddi fyllilega við aðgerðir seðlabanka landsins til að sporna gegn háu gengi bahtsins. Aðgerðir stjórnvalda virðast hafa skilað einhverjum árangri því lækkunin á gengi bahtsins í dag er eins sú mest í þrjú ár.
Erlent Fréttir Viðskipti Mest lesið Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Viðskipti innlent Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Viðskipti innlent „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Samstarf Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri X hættir óvænt Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent