Marel tapaði 61 milljón króna 7. nóvember 2006 15:16 Hörður Arnarson, forstjóri Marel. Mynd/E.Ól.
Marel skilaði 674.000 evra tapi á þriðja fjórðungi ársins. Þetta svarar til 61 milljónar krónu taps samanborið við 1,2 milljóna evru eða ríflega 104 milljóna króna tapreksturs á sama tíma fyrir ári. Í tilkynningu frá Marel til Kauphallar Íslands kemur fram að sala á fjórðungnum hafi aukist um 90 prósent á milli ára. Hún nam 57,6 milljónum evra eða 5,2 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu samanborið við 30,4 milljónir evra eða 2,4 milljarða íslenskra króna fyrir ári. Frá þriðja ársfjórðungi 2005 hafa félögin AEW Delford Systems og Scanvægt bæst við annars vegar 7. apríl og hins vegar 4. ágúst. Rekstrarhagnaður EBIT á þriðja ársfjórðungi var 1,7 milljónir evra eða 152 milljónir íslenskra króna sem er 2,9 prósent af tekjum samanborið við 2,1 milljón evrur eða 165 milljónir króna í fyrra. Á tímabilinu lætur nærri að gjaldfærður einskiptiskostnaður vegna kaupa Marel á nýjum félögum nemi um 1,5 milljón evra. Sala Marel á fyrstu níu mánuðum ársins nam 136,8 milljónum evra eða 11,9 milljörðum íslenskra króna samanborið við 94,3 milljónir eða 7,5 milljarðar krónur á sama tíma í fyrra. Aukningin nemur 45 prósentum á milli ára. Fjármagnsgjöld voru um 3,8 milljónir evra samanborið við 2,0 milljónir evra árið áður. Hækkun stafar einkum af aukinni starfsemi vegna ytri vaxtar tengdum kaupum á AEW Delford Systems og Scanvægt. Tap af hlutdeildarfélagi má rekja til verðlækkunar á hlutabréfum í hollenska fyrirtækinu Stork NV en þau eru færð á markaðsvirði. Handbært fé í lok tímabilsins nam 63,9 milljónum evra og eiginfjárhlutfall var 39,4 prósent.Tilkynning Marel
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Hagkerfið allt í hættu Viðskipti innlent Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Viðskipti innlent Ráku blaðamann vegna falskra gervigreindartilvitnana Viðskipti erlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Fleiri fréttir Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Boðar aðgerðir á allra næstu dögum gegn verðbólgu Dæmdir fyrir að taka við fé fyrir Teslur sem þeir afhentu aldrei Affineva bar sigur úr býtum Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Gugga fer í fyrirtækjarekstur „Það er einhvers konar pissa í skóinn sinn-hagfræði“ Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Kvikutoppar fóru fýluferð í Landsrétt og borga tugi milljóna Bein útsending: Lokakeppni Gulleggsins 2026 Tekist á um kaupfox og hefð vegna 80 ára jeppa Mikið í húfi ef ekki dregur úr verðbólgu og vaxtalækkun ekki í sjónmáli Tilboð Icelandair það eina og langt yfir áætlun Lilja nýr markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum Verðbólga stendur í stað þvert á spár Bjarni Guðjóns hættir hjá VÍS Festa kaup á hugbúnaðarfyrirtækinu Evolv Selja húsnæði Vélfags á Ólafsfirði Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við viðskiptavin Velta heilsulinda jókst töluvert „Ægilega hamingjusamur“ með milljarðana frá Kerecis Sjá meira